Stjórnarandstaðan ekki heyrt af breytingum í stjórnarskrármálinu Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 9. febrúar 2013 12:02 Úr sal Alþingis
Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa ekki heyrt af stefnubreytingu í stjórnarskrármálinu hjá stjórnarflokkunum. Þingmaður hreyfingarinnar segist ekki trúa því að verið sé að falla frá heildarendurskoðun á stjórnskipunarlögum. Í fréttum okkar í gær sögðum við frá því að þingmenn stjórnarmeirihlutans séu tilbúnir að gera sátt í stjórnarskrármálinu að því leyti að kaflar stjórnarskrárfrumvarpsins sem eru óumdeildir verði grundvöllur nýrrar stjórnarskrár en þeir sem mestu átökin eru um fari ekki í gegn. Sama er upp á teningnum í umfjöllun Morgunblaðsins í dag en þar segir að búið sé að taka ákvörðun um þetta í herbúðum stjórnarflokkanna. Frumvarpið bíður nú annarrar umræðu í þinginu en er ekki komið á dagskrá fyrir næsta þingfund á mánudag. Nýtt kvótafrumvarp verður þá hins vegar til umræðu og telja þeir þingmenn sem fréttastofa ræddi við í morgun að það væri til þess að koma því frumvarpi til nefndar áður en farið verður í áframhaldandi umræðu um stjórnarskránna. Margrét Tryggvadóttir þingmaður hreyfingarinnar sagði í samtali við fréttastofu í morgun að hún trúi því ekki að búið sé að hætta við heildarendurskoðun á stjórnarskránni og þeir stjórnarliðar sem hún hafi rætt við kannist ekki við það og hún trúi því að málið verði á dagskrá síðar í næstu viku. Aðrir þingmenn innan stjórnarandstöðunnar kannast heldur ekki við þessar breytingar og segja þeir tímann vera að renna út en einungis fimmtán þingfundardagar eru eftir á yfirstandandi þingi og þó svo að einungis eigi að semja um einstaka kafla en ekki heildarbreytingar þá þurfi að ákveða afstöðu í þeim köflum. Einn þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir það hins vegar vera framkvæmd sem flokkurinn væri tilbúinn í viðræður um og síðan væri mögulega hægt að gera samkomulag allra flokka um að málinu verði framhaldið eftir kosningar.
Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Sjá meira