Innlent

Grétar enn ófundinn - 50 manns halda áfram leit í dag

Leitin að Grétari Guðfinnssyni Á Siglufirði hefur engan árangur borið en leitað hefur verið að honum frá því á miðvikudag.

Leit hófst að nýju í morgun og taka um fimmtíu manns þátt í henni, samkvæmt upplýsingum frá björgunarsveitum á svæðinu. Á fimmtudag fundu björgunarsveitarmenn úlpu, húfu, veski og síma Grétars.

Engar aðrar vísbendingar hafa borist. Ekki leikur grunur á að neitt saknæmt hafi átt sér stað.

Grétar er 45 ára gamall, 185 sentímetrar á hæð, grannvaxinn og með ljóst stutt hár. Ef einhver telur sig geta aðstoðað lögregluna við leitina á honum, er bent á að hafa samband við lögregluna á Akureyri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×