Innlent

Fjórir liðsmenn Vítisengla handteknir

Lögreglan fór í húsleit í Síðumúla í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar í morgun en sá fyrir henni varð var fluttur á slysadeild með alvarlega áverka á höfði.

Í húsnæðinu er rekinn ólöglegur veitingastaður. Þegar lögreglumenn bar að í morgun voru á milli 25 til 30 manns inni á staðnum. Lögreglumenn framkvæmdu húsleit og lögðu hald á töluvert magn af áfengi og fíkniefnum.

Lögreglan segir í tilkynningu að bifhjólasamtökin Hells Angels hafi nýlega komið sér fyrir í húsnæðinu.

Samkvæmt heimildum fréttastofu voru þrír handteknir í aðgerðum síðdegis, og verða þeir væntanlega yfirheyrðir þegar líður á kvöldið. Þá var annar maður handtekinn í húsnæðinu í morgun, en honum sleppt stuttu síðar.

Húsnæðið þar sem ólöglegi veitingastaðurinn er til húsa, í Síðumúla
Nánar er ekki vitað um málið að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×