Innlent

Á að hafa kysst þroskaskerta konu á munninn og sagst elska hana

Hjörtur Hjartarson skrifar
Mynd tengist frétt ekki beint
Mynd tengist frétt ekki beint Mynd/GETTY
Bílstjórinn sem kærður var fyrir að nauðga fatlaðri konu á meðan hann starfaði fyrir ferðaþjónustu fatlaðra í Kópavogi er grunaður um að hafa ítrekað kynferðislega áreitt þroskaskerta konu á meðan hann vann fyrir Mosfellsbæ.

Kópavogur hyggst endurskoða verkferla í gerð þjónustusamninga við verktaka, segir upplýsingafulltrúi bæjarins.

Bílstjóranum var sagt upp störfum um miðjan mars eftir að hann var kærður fyrir að nauðga fatlaðri konu á fertugsaldri. Hann vann hjá verktakafyrirtækinu Smartbílar ehf. sem sér um ferðaþjónustu fatlaðra fyrir bæði Kópavog og Mosfellsbæ.

Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að maðurinn sé einnig grunaður um annað kynferðisbrot.

Hann á að hafa, um nokkurra vikna skeið, ítrekað kysst þroskaskerta konu á munninn, haldið utan um hana og sagst elska hana. Bílstjórinn hafi gefið konunni kókflöskur gegn því að hún segði ekki frá. Hún tilkynnti hinsvegar áreitnina á vinnustað sínum og í kjölfarið fór yfirmaður hennar áfram með málið. Það hefur þó ekki verið kært til lögreglu.

Samkvæmt heimildum fréttastofu var maðurinn að störfum fyrir ferðaþjónustu fatlaðra í Mosfellsbæ þegar kynferðislega áreitnin átti sér stað. Það brot mun hafa átt sér stað áður en bílstjórinn var kærður fyrir nauðgun en þá var hann að vinna fyrir Kópavogsbæ á vegum Smartbíla.

Arna Schram, upplýsingfulltrúi Kópavogsbæjar segir að í kjölfar þessara frétta muni bæjarfélagið endurskoða alla verkferla er varða ferðaþjónustu fatlaðra.

„Við höfum þegar boðað Gunnar Torfason, framkvæmdastjóra Smartbíla, á fund með velferðarsviði Kópavogs. Þar förum við yfir málsatvik og verkferla. Kópavogsbær gerir miklar kröfur til þeirra sem sinna slíkri þjónustu. Þær kröfur eru gerðar að þeir sem starfi hjá fyrirtæki, sem vinni fyrir bæinn, leggi fram hreint sakavottorð,“ segir Arna.

Ekki náðist í Gunnar Torfason, framkvæmdarstjóra Smartbíla í dag.

Aldís Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Mosfellsbæjar staðfesti við fréttastofu í morgun að seinna brot bílstjórans hafi verið gegn íbúa bæjarfélagsins.

Hún sagði jafnframt að bæjaryfirvöld hafi ekki haft vitneskju um meint brot fyrr fréttamaður hafði samband við skrifstofu Mosfellsbæjar í morgun.

Eftirgrennslan hafi hinsvegar leitt í ljós að ekkert formlegt erindi um málið hafði borist Mosfellsbæ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×