Konur í miklum minnihluta í lögreglunni Boði Logason skrifar 2. maí 2013 15:14 12,6 prósent starfsmanna lögreglunnar eru konur og 87,4 prósent karlar. Mynd/Vísir
Engin kona starfaði sem yfirlögregluþjónn hér á landi á síðasta ári en 23 karlar gegndu því starfi. Þetta kemur fram í ársskýrslu ríkislögreglustjóra fyrir árið 2012 sem kom út í dag. Þar kemur einnig fram að 12,6 prósent starfsmanna lögreglunnar eru konur og 87,4 prósent karlar. Á meðal starfandi óbreyttra lögreglumanna eru 86 prósent karlar en 14 prósent konur. Hlutfall kvenna er hæst á meðal lögreglufulltrúa, 21 prósent af starfsstigum lögreglunnar. Á síðasta ári voru starfsmenn lögreglunnar 759, þar af 96 konur. Flestir störfuðu sem lögreglumenn eða 202 og næst flestir sem varðstjórar, 142. Einungis 9 konur störfuðu sem varðstjórar og 133 karlar. Konur voru því aðeins 6,3 varðstjóra. Í stöðu aðalvarðstjóra starfaði aðeins 1 kona, á móti 35 körlum. Engin kona starfaði sem aðstoðarvarðstjóri, en 3 karlar. Þá starfaði 1 kona sem aðstoðaryfirlögregluþjónn, en 29 karlar. Engin kona var yfirlögregluþjónn, en 23 karlar. Í skýrslunni segir að jafnréttisnefnd sé starfræk innan lögreglunnar. Á árlegum fundi í maí síðastliðnum var jafnréttis- og framkvæmdaáætlun lögreglunnar meðal annars endurskoðuð og rætt var um möguleikann á frekara norrænu samstarfi. Í október var haldinn fræðslufundur jafnréttisfulltrúa embætta með jafnréttisnefnd lögreglunnar. Þá segir einnig í skýrslunni að á árinu hafi eitt formlegt erindi borist til jafnréttisfulltrúa lögreglunnar. „Hjá embætti ríkislögreglustjóra var á árinu gefin út framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum. Með henni er haldið utan um kyngreindar tölfræðiupplýsingar er snúa að starfsemi embættisins,“ segir í skýrslunni.Skýrsluna má lesa hér.Tafla um kynjaskiptingu í lögreglunni
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira