Þeytti bílflautu og var rotaður Valur Grettisson skrifar 1. október 2013 07:09
Tuttugu og fjögurra ára gamall karlmaður var dæmdur í eins og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Maðurinn var sakfelldur fyrir að ráðast á annan mann í umferðinni nærri Olís í Norðlingaholti með þeim afleiðingum að sá féll í götuna og missti meðvitund. Mennirnir voru að aka frá bifreiðastæði við Olís með fyrirhugaða akstursstefnu austur Norðlingabraut þegar brotaþoli flautaði „létt“ á hann eins og hann lýsti fyrir dómi. Úr varð að sá dæmdi fór út úr bílnum, þar sem fyrir voru kærasta hans og lítið barn, gekk að bifreið mannsins og fór að ýta eða pota í hann í gegnum rúðuna. Fórnarlambið fór þá út úr bílnum og rifust þeir nokkuð áður en árásarmaðurinn sló síma úr höndum hans og gekk í burtu. Elti brotaþolinn hann þá að bílnum og sló þar í spegil bifreiðarinnar. Vitni lýsa því að þá hafi einhver átök átt sér stað, sem enduðu með því að brotaþolinn féll í götuna og rotaðist. Við það flýði hinn dæmdi og hringdi sjálfur á lögreglu skammt frá. Í niðurstöðu dómsins segir svo: „Má telja mildi að ekki hafi verr farið, en brotaþoli féll á hnakka í malbikið og rotaðist. Í stað þess að huga að brotaþola og tryggja öndun hjá honum fór ákærði þegar á brott og yfirgaf brotaþola. Var framferði ákærða þennan dag í alla staði ámælisvert.“
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Sjá meira