Börnin skila sigrinum Bjarki Ármannsson skrifar 27. desember 2013 08:00 Haraldur Freyr og Heiðar Örn hafa ekki gleymt ógöngunum árið 2003. Fréttablaðið/Anton
Hljómsveitin Pollapönk komst á dögunum áfram í undankeppni Eurovision með lagið Enga fordóma. Pollapönk er meðal annars skipuð fyrrverandi meðlimum rokksveitarinnar Botnleðju, en þeir hafa ekki gleymt því þegar sú hljómsveit komst næstum því áfram í lokakeppnina í Lettlandi fyrir tíu árum síðan. „Við skíttöpuðum,“ segir Haraldur Freyr Gíslason, meðlimur Pollapönks, en Botnleðja lenti á sínum tíma í öðru sæti undankeppninnar með lagið Eurovísa á eftir Birgittu Haukdal. „Þetta er okkar versta tap á ferlinum.“ Haraldur segir að marga mánuði á eftir hafi meðlimir Botnleðju velt því fyrir sér hvað fór úrskeiðis. „Við vorum búnir að greina þetta í drep og skrifa margar skýrslur,“ segir hann. „Þá áttuðum við okkur á því að það vantaði hjá okkur grunninn. Hús verða að vera byggð á góðum grunni og okkar bara var ekki nógu traustur.“ Að sögn Haraldar lögðu meðlimir sveitarinnar á ráðin um að taka aftur þátt og sigra að tíu árum liðnum. Haraldur og Heiðar Örn Kristjánsson stofnaðu í millitíðinni hljómsveitina Pollapönk, „markvisst til að ná til yngri hlustenda,“ sem hefur síðan gefið út þrjár breiðskífur. „Elstu aðdáendur Pollapönks eru núna allir komnir með síma,“ segir Haraldur, handviss um að þessi aukni liðsstyrkur muni skila sér í sigri í ár. „Nú náum við til svo marga. Við höfum náttúrulega líka gömlu aðdáendur Botnleðju. Þeir hafa ekki fyrirgefið neitt.“ Haraldur segir svo sveitina hafa sent sitt allra besta lag í keppnina. Hafa meðlimir Pollapönks þá engar áhyggjur af gengi sínu þetta árið? „Við höfum sko mestar áhyggjur af því hvar við ætlum að halda keppnina árið 2015. En það er ekki búið að byggja hótelið við hliðina á Hörpunni, þannig við getum bara hent upp stóru húsi þar.“ ??? „Þá áttuðum við okkur á því að það vantaði hjá okkur grunninn. Hús verða að vera byggð á góðum grunni og okkar bara var ekki nógu traustur. Haraldur Freyr Gíslason - bá
Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira