Ásthildur hlaut aðalverðlaunin 22. febrúar 2013 21:00 Ásthildur Kjartansdóttir hlaut aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar Arctic Heat um helgina fyrir stuttmyndina Brynhildur og Kjartan. fréttablaðið/vilhelm
Stuttmynd Ásthildar Kjartansdóttur hlaut aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar Arctic Heat helgina sem leið. Ásthildur var nýkomin heim af Eddunni þegar henni var tilkynnt um sigurinn á Arctic Heat en hátíðin var fyrst haldin árið 1997. „Ég var að koma heim af Eddunni og þá beið mín póstur þar sem mér var tilkynnt um sigurinn. Ég var auðvitað mjög ánægð með það,“ segir Ásthildur. Stuttmyndin ber titilinn Brynhildur og Kjartan og fjallar um eldri hjón sem búa saman í lítilli íbúð. Maðurinn þjáist af Alzheimer og reynir eiginkona hans að takast á við veikindin með honum. „Þetta er vissulega stórt og mikið efni fyrir mynd sem er ekki nema fjórtán mínútur að lengd, en það næst samt að draga upp heillega mynd af þeirra aðstæðum.“ Myndirnar sem keppa til verðlauna á Arctic Heat eru í leikstjórn kvenna og þurfa leikstjórarnir einnig að hafa ríkisfang í einhverju Norðurlandanna. Alls komast 27 myndir í undanúrslit og velur dómnefnd sigurvegara úr þeim hópi. Sá hlýtur um 85 þúsund krónur að launum. Þegar Ásthildur er innt eftir því hvort kvikmyndahátíð sem þessi sé nauðsynleg í dag telur hún svo vera. „Ætli þetta sé ekki viðbragð við því ástandi sem ríkir innan kvikmyndabransans. Það skiptir engu máli hverjum það er að kenna, svona er þetta og það er ekki gott,“ segir hún að lokum.
Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Lífið samstarf Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira