Þarf að auka aga og skerpa á vinnubrögðum samningsaðila Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 21. maí 2013 19:48 Guðlaug Kristjánsdóttir.
Breytinga er þörf á því hvernig staðið er að gerð kjarasamninga og nauðsynlegt er að auka aga og skerpa vinnubrögð samningsaðila. Þetta er niðurstaða vinnuhóps samtaka launafólks og vinnuveitenda sem rýnt hefur í kjarasamningagerð á Norðurlöndunum. Kjarasamningagerð hér á landi hefur gengið erfiðlega síðustu ár. Fyrirkomulag þeirra hefur sætt gagnrýni og hið sama má segja um efnahagsleg áhrif samninganna. Viðræðurnar dragast síðan iðulega á langinn - ástæðuna fyrir því má að einhverju leyti rekja til þess að sjálfur undirbúningur samningsaðila hafi ekki verið góður. Í skýrslu vinnuhópsins er sérstaklega fjallað um hið Norræna líkan í gerð kjarasamninga, þar sem aginn er mikill og höfuðáhersla er lögð á að útflutningsgreinar leiði þróunina. „Við erum á þeim stað sem þeir voru í óstöðugleika, búnir að búa við langvarandi stöðuleika í marga áratugi með því að gera breytingar hjá sér og taka upp nýja hætti. Við erum á þeim stað sem margir þeirra voru á fyrir tveimur eða þremur áratugum,“ segir Hannes G. Sigurðsson aðstoðar framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins. Meðal annars fela þessar breytingar í sér aukið vægi sáttasemjara, sem hefur það hlutverk að tryggja samstöðu um launastefnuna. En það er sjálf tölfræðin sem skiptir sköpum í þessum áherslubreytingum. „Við íslendingar megum alveg stórbæta á mörgum sviðum tölfræðina og við höfum gert það nýlega áður í aðdraganda kjarasamninga. Þetta gefur færi á því að aðilar séu sammála um tölurnar skapa grundvöll og sátt til að standa á,“ Guðlaug Kristjánsdóttir formaður Bandalags háskólamanna. Hið norræna líkan sem slíkt á þó lítið erindi hér, þá sérstaklega með tilliti til kjarasamninga, verðbólgu og eðli vinnumarkaðar. Öllum er þó hollt að hafa góðar fyrirmyndir. „Við erum með sérstakar aðstæður hér á landi. Núna þurfum við að vinna úr þessum gögnum og reyna að finna okkar eigið líkan sem hentar hér,“ segir Hannes.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira