Ríkið hefur framtíð Bæjarbíós í hendi sér Svavar Hávarðsson skrifar 21. maí 2013 10:00 Hugmynd bæjaryfirvalda er að leikhús og kvikmyndasafn verði undir sama þaki í húsinu. Fréttablaðið/Danni
Hafnarfjarðarbær telur ekki forsendur til að endurskoða ákvörðun sína um að fela Gaflaraleikhúsinu rekstur Bæjarbíós nema til komi skýr vilji stjórnvalda til að leggja meira fjármagn í sýningarhluta Kvikmyndasafns Íslands eins og bæjaryfirvöld hafa ítrekað óskað eftir. „Niðurstaða er ekki komin í málið. Við teljum ekki ásættanlegt að halda áfram núverandi starfsemi við óbreyttar aðstæður og það er ráðuneytisins að sýna vilja með fjárframlagi til safnsins, svo hægt sé að vera með meira líf í húsinu. Það er í raun engin breyting á afstöðu sveitarfélagsins og boltinn er hjá ráðuneytinu,“ segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, um hugmyndir bæjarráðs um breyttan rekstur Bæjarbíós. Grunnhugmynd bæjaryfirvalda er að auka starfsemina í húsinu, en Kvikmyndasafn Íslands hefur haft aðstöðuna til umráða um nokkurra ára skeið án endurgjalds. Erlendur Sveinsson, forstöðumaður Kvikmyndasafnsins, er þeirrar skoðunar að starfsemi safnsins og leikhúss eigi þar ekki saman og leggst alfarið gegn hugmyndum bæjarráðs. Fór hann þess á leit að ákvörðun um breyttan rekstur í Bæjarbíói yrði frestað og samningur við Kvikmyndasafnið yrði framlengdur að minnsta kosti til næsta vors. Í bréfi Erlends til bæjarins segir að verði leikhúsi falinn rekstur hússins verði kvikmyndasýningum hætt. „Mun safnið þá eðli málsins samkvæmt í kjölfarið taka niður sýningaraðstöðu sína, sýningarvélar, myndvarpa, sýningartjald, öryggiskerfi og fleira. Jafnframt er eðlilegt að safnið kanni rétt sinn vegna kostnaðar sem það hefur lagt út í,“ skrifar Erlendur eins og Fréttablaðið greindi frá 7. maí. Samningar bæjarins um leigu húsnæðis undir leiklistarstarfsemi eru lausir um næstu áramót. Því telja bæjaryfirvöld að niðurstaða ráðuneytisins um aðkomu að starfseminni verði að liggja fyrir í lok maí, í síðasta lagi. Hafnarfjarðarbær leigir aðstöðu af þriðja aðila undir leiklistar- og aðra menningarstarfsemi og telja bæjaryfirvöld eðlilegt að endurskoða hvernig fjármagni sé best varið í þessum málaflokki. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins telja bæjaryfirvöld að upphafleg áform um nýtingu hússins hafi ekki gengið eftir nema að litlum hluta. Ekki náðist í Erlend Sveinsson við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sjá meira