Gæslan berskjölduð eftir bilun í TF-GNÁ Svavar Hávarðsson skrifar 27. apríl 2013 09:17 Margoft hefur verið bent á hversu Gæslan er berskjölduð gagnvart skyndibilunum í björgunarþyrlunum.
Björgunargeta Landhelgisgæslunnar er verulega skert eftir að alvarleg bilun kom upp í útkalli hjá TF-GNÁ á fimmtudag. Er nú aðeins ein þyrla til taks. GNÁ var stödd um 20 sjómílur frá landi þegar bilunin kom upp og var þyrlunni þegar flogið til lands og nauðlent á túni við bæinn Kvísker í Öræfum. Margoft hefur verið bent á hversu Gæslan er berskjölduð gagnvart skyndibilunum í björgunarþyrlunum, sem eru þrjár. TFLÍF er í reglubundinni skoðun og því er TF-SÝN eina þyrlan sem er til taks en hún er ekki eins vel búin tækjum og hinar þyrlurnar tvær. Forsvarsmenn Gæslunnar hafa ítrekað bent á þörfina fyrir endurnýjun þyrluflotans. GNÁ og SÝN eru báðar leiguþyrlur; SÝN verður skilað í haust en GNÁ á næsta ári. Stefnir því allt í að aðeins verði ein þyrla, LÍF, í rekstri Landhelgisgæslunnar. Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs LSH, segir ástandið alvarlegt. „Eins og almenningur í landinu þá lít ég svo á að þetta verði að vera í lagi. Við treystum mjög á þessi björgunartæki, það er krafa tímans. Ekki bara fyrir sjófarendur heldur fyrir okkur öll. Það er alvarlegt þegar þeirri þörf er ekki fullnægt,“ segir Ásgrímur. Spurður hvað hann viti um framgang mála hjá stjórnvöldum um kaup eða leigu á þyrlum er svar Ásgríms skýrt: „Ég veit ekkert um það.“ Ásgrímur segir að áhöfn þyrlunnar hafi þurft að lenda við fyrsta tækifæri enda ljóst frá byrjun að bilunin var alvarleg. „Þegar þetta var skoðað eftir lendingu var málmsvarfi í olíu og það segir sig sjálft að þegar svo er getur verið stutt í að hlutir fari að festast,“ segir Ásgrímur. Tekin hefur verið ákvörðun um að GNÁ verði á Kvískerjum fram yfir helgi en ekki er hægt að vinna að viðgerð þyrlunnar á staðnum. Talsvert verkefni er að flytja þyrluna til Reykjavíkur og voru blöðin tekin af þyrlunni í gær og þau send með flutningabíl til Reykjavíkur. Eftir að hafa metið stöðuna til hlítar var ákveðið að ljúka reglubundinni skoðun þyrlunnar LÍF hið fyrsta og að henni lokinni hefjist vinna við GNÁ.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira