Eve Online sprengdi utan af sér Hörpuna 27. apríl 2013 09:52 Gestum á Eve-fanfest gefst vitaskuld kostur á að spila leikinn en alls eru viðburðir á hátíðinni 105 talsins. Fréttablaðið/Vilhelm „
Þetta er frábært. Við erum að koma hingað í fyrsta sinn en mig hefur langað að koma til Íslands frá því að ég byrjaði að spila Eve fyrir fjórum árum. Nú er ég hins vegar loksins búinn að eignast kærustu sem var til í að koma með mér til Íslands þannig að þetta var tækifærið,“ segir Svíinn Holger sem er ásamt Önnu, kærustu sinni, meðal gesta á Evefanfest sem fer fram í Hörpu um helgina. Það er tölvuleikjaframleiðandinn CCP sem hefur veg og vanda af hátíðinni sem fer fram í níunda sinn í ár. Þá er sérstaklega haldið upp á það í ár að Eve Online-tölvuleikurinn verður tíu ára á þessu ári. Alls eru um 2.000 gestir á hátíðinni en samtals eru spilarar leiksins ríflega 500.000. Mjög fjölbreytt dagskrá er á hátíðinni en samtals fara fram 105 ólíkir viðburðir á þeim fjórum dögum sem hátíðin stendur. Má í því samhengi nefna að meðal þátttakenda í pallborðsumræðum á hátíðinni verða Paola Antonelli, sýningarstjóri MoMalistasafnsins í New York, og Chris Lewicki, sem hefur unnið að geimferðarannsóknum hjá bandarísku geimferðastofnuninni (NASA). Þá gengu tveir EVE-spilarar í hjónaband á hátíðinni á fimmtudag. „Stemningin hingað til hefur verið alveg ótrúlega góð. Þetta byrjaði á fimmtudag og stærsti viðburður inn þá var stór kynning á Dust-514, nýja leiknum okkar, sem gekk mjög vel. Síðan hefur allt gengið eins og í sögu þannig að við sem stöndum að hátíðinni erum rosalega ánægð og það sama virðist gilda um gestina,“ segir Eldar Ástþórsson, fjölmiðlafulltrúi CCP. Þá segir Eldar að áhuginn á hátíðinni hafi verið slíkur í ár að Harpa sé ekki nægilega stór til að rúma alla áhugasama gesti. „Við hættum að selja miða á hátíðina fyrir tveimur mánuðum vegna þess að við höfðum eiginlega ekki pláss fyrir fleiri gesti. Eldborg tekur 1.600 manns í sæti og þar sem við erum með ákveðna viðburði á hátíðinni sem við viljum að allir geti notið þá setur sá sætafjöldi eiginlega efri mörk á mögulegan fjölda gesta. Við verðum því að hugsa fyrirkomulagið á þessu aðeins fyrir næsta ár,“ segir Eldar.
Mest lesið Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Innlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Erlent Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Innlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Fleiri fréttir Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Sjá meira