KR-ingar geta tryggt sér titilinn á Hlíðarenda í fyrsta sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. september 2013 08:00 KR-liðið er í kjörstöðu á toppnum. Mynd/Daníel
KR-inga vantar aðeins tvö stig til að tryggja sér 26. Íslandsmeistaratitilinn. KR-liðið getur afrekað það á morgun sem félagið hefur aldrei náð – að tryggja sér titilinn á heimavelli erkifjendanna á Hlíðarenda. Sömu sögu er ekki að segja af Valsmönnum, sem tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á KR-vellinum 5. september 1987. Báðir þjálfarar KR í dag, Rúnar Kristinsson og Pétur Pétursson, léku þá með KR-liðinu og geta því loksins náð hefndum, 26 árum síðar. Íslandsmeistaratitilinn hefur aðeins einu sinni unnist á Hlíðarenda en Valsmenn tryggðu sér titilinn 1985 með því að vinna einmitt 1-0 sigur á KR-ingum. Heil umferð fer fram á morgun og hefjast allir leikirnir klukkan 16.00. Stjarnan og Breiðablik mætast í Garðabænum í mikilvægum leik í baráttunni um Evrópusæti. Stjarnan er með fjögurra stiga forskot á Blika þegar sex stig eru í pottinum. Blikar verða því að vinna. Fallbaráttan er líka í fullum gangi þótt Skagamenn séu fallnir úr deildinni. Þórsarar fá ÍA í heimsókn á sama tíma og Ólafsvíkur-Víkingar heimsækja Fylki í Árbæinn og Keflvíkingar taka á móti ÍBV. Keflvíkingar tryggja sæti sitt með sigri og Víkingar falla úr deildinni ef þeir tapa sínum leik á sama tíma og Þór tekur öll stigin á móti Skaganum. Fram tekur á móti FH í lokaleiknum en FH á enn pínulitla möguleika á meistaratitlinum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira