Reynslulitlir ráðherrar Boði Logason skrifar 23. maí 2013 11:02 Ráðherrar nýju ríkisstjórnarinnar eru samtals með 45 ára þingreynslu.
Ríkisstjórnin sem tekur formlega við völdum í dag er með töluvert minni þingreynslu en sú sem hefur setið síðustu fjögur ár. Ráðherrar nýju ríkisstjórnarinnar eru samanlagt með 45 ára þingreynslu samanborið við 131 árs þingreynslu ráðherranna sem eru að fara frá og ráðherrar gömlu stjórnarinnar voru líka einum færri en verða í nýju stjórninni. Af nýju ráðherrunum hefur Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, langmestu þingreynsluna en hann hefur setið á Alþingi frá árinu 2003 eða í 10 ár. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa samtals setið á Alþingi í 28 ár miðað við 17 ár Framsóknarflokksins. Allir ráðherrar Framsóknarflokksins voru kosnir fyrst á Alþingi árið 2009, en það ber þó að taka fram að Eygló Harðardóttir kom inn á Alþingi árið 2008 sem varamaður þegar að Guðni Ágústsson hætti á þingi. Þingreynsla Jóhönnu Sigurðardóttur, fráfarandi forsætisráðherra, vegur mest en hún hefur setið á þingi í 35 ár og Steingrímur J. Sigfússon, fráfarandi atvinnuvegaráðherra í 30 ár. Ögmundur Jónasson, fráfarandi innanríkisráðherra, er með 18 ára þingreynslu og Össur Skarphéðinsson, fráfarandi utanríkisráðherra, 22 ár. Af núverandi þingmönnum á Alþingi er Steingrímur J. með langmestu þingreynsluna en hann hefur setið á Alþingi frá árinu 1983, eða í 30 ár eins og áður sagði. Tuttugu og sjö nýir þingmenn setjast nú á Alþingi eða tæplega 43 prósent allra þingmanna og rúmlega 68 prósent núverandi þingmanna eru með fjögurra ára þingreynslu eða minna.Núverandi ríkisstjórn:Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra - 2008 - 5 árGunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra - 2009 - 4 árSigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra - 2009 - 4 árSigurður Ingi Jóhannsson, landbúnaðar, sjávarútvegs og umhverfisráðherra - 2009 - 4 árBjarni Benediktsson, fjármálaráðherra - 2003 - 10 árHanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra - 2013 - 0 árIllugi Gunnarsson, menntamálaráðherra - 2007 - 6 árKristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra - 2007 - 6 árRagnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra - 2007 - 6 ár Framsóknarflokkurinn - 17 ára þingreynsla Sjálfstæðisflokkurinn - 28 ára þingreynslaSamtals: 45 árFráfarandi ríkisstjórn:Guðbjartur Hannesson, heilbrigðisráðherra - 2007 - 6 árJóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra - 1978 - 35 árKatrín Júlíusdóttir, fjármálaráðherra - 2003 - 10 árÖssur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra - 1991 - 22 árKatrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra - 2007 - 6 árSteingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega og nýsköpunarráðherra - 1983 - 30 árSvandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra - 2009 - 4 árÖgmundur Jónasson, innanríkisráðherra - 1995 - 18 ár Samfylking - 73 ára þingreynsla Vinstri Grænir - 58 ára þingreynslaSamtals: 131 ár
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Fleiri fréttir Lögreglan í aðgerð á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Sjá meira