Aðgerðir gegn skipafélögum undirbúnar í eitt ár St ígur Helgason skrifar 11. september 2013 07:00 Ásbjörn Gíslason. forstjóri Samskipa, segir fyrst og fremst hafa verið lagt hald á gögn í tölvutæku formi.
Samkeppniseftirlitið byrjaði fyrir um einu ári að hafa samband við samkeppnisaðila Eimskips og Samskipa til að afla gagna um mögulegt samráð og fleiri brot hjá skipafélögunum tveimur og ýmsum dótturfélögum. Samkeppniseftirlitið (SE) hefur í um eitt ár hið minnsta undirbúið aðgerðirnar sem ráðist var í hjá Eimskipi, Samskipum og dótturfélögum þeirra í gærmorgun, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Starfsmenn SE hafa haft samband við fulltrúa samkeppnisaðila í geiranum til að afla gagna og upplýsinga um meint brot fyrirtækjanna og hófst sú eftirgrennslan sem áður segir fyrir um ári. Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips, staðfesti við Fréttablaðið að þar hefði athugunin beinst að þremur fyrirtækjum; Eimskipafélaginu sjálfu og dótturfyrirtækjunum TVG Zimsen, sem er svokallað flutningsmiðlunarfyrirtæki, og landflutningafyrirtækinu Flytjanda. Sambærileg fyrirtæki eru rekin undir hatti Samskipa; flutningsmiðlunarfyrirtækið Jónar transport og Landflutningar. Starfsmenn SE fóru ásamt lögreglumönnum inn í húsakynni fyrirtækjanna tveggja og dótturfyrirtækja í gærmorgun með dómsúrskurð upp á vasann og öfluðu þar gagna fram eftir degi. Í tilkynningu frá SE sagði að tilgangur rannsóknarinnar væri að kanna hvort vísbendingar um ólögmætt samráð fyrirtækjanna og misnotkun á markaðsráðandi stöðu ættu við rök að styðjast. Ekki fengust upplýsingar um það í gær hvort grunur væri um samráð á milli fyrirtækjasamsteypanna Eimskips og Samskipa eða samráð á milli móðurfélaganna og dótturfélaganna. Nánar er fjallað um málið í Fréttablaðinu í dag.
Ólöglegt samráð Eimskips og Samskipa Eimskip Samkeppnismál Skipaflutningar Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Sjá meira