Fréttastofur Vísis, Stöðvar 2 og Fréttablaðsins sameinaðar 16. maí 2013 17:44
Stjórn 365 miðla hefur ákveðið að fréttastofur fyrirtækisins, ritstjórn Fréttablaðsins og fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, verði sameinaðar í eina öfluga fréttastofu 365. Jafnframt hefur verið ákveðið að fella allan sjónvarpsrekstur annan en þjónustu fréttastofu undir eina stjórn, bæði dagskrársetningu og eigin framleiðslu fyrir opna og lokaða dagskrá Stöðvar 2 og sportstöðva og fylgistöðva Stöðvar 2, sem eru Krakkar, Gull, Bíórásin og PoppTV. Freyr Einarsson mun stýra sjónvarpsrekstri fyrirtækisins. Loks eru rekstrarmál sem snúa að húsnæði, bifreiðum ofl, færð frá fjármálasviði og undir stjórn Svans Valgeirssonar sem stýrir Þróunar- og rekstrarmálum. Sameinaðri ritstjórn stýra núverandi ritstjórar Fréttablaðsins. Mikael Torfason verður aðalritstjóri og leiðir sameiningarferlið og Ólafur Þ. Stephensen verður ritstjóri. Áfram verða svo starfandi frétta- og vaktstjórar einstakra miðla. Sameiningin er rökrétt framhald á aukinni samvinnu ritstjórna 365 miðla undanfarin ár. Með því að stíga skrefið til fulls er dregið úr tvíverknaði og óhagræði og kraftar rúmlega 100 starfsmanna nýttir betur. Breytingin mun hafa í för með sér að talsverður hópur fréttamanna vinnur fréttir fyrir alla miðla fyrirtækisins jöfnum höndum. Með því næst tvennt fram. Annars vegar verða blaðamenn sérfræðingar í efni málsins fremur en miðlinum og fjölbreytt þekking þeirra á málum nýtist betur. Hins vegar verður til öflugri sýn á það hvaða hliðum stórra fréttamála er best sinnt í hverjum miðli fyrir sig og miðlarnir vinna saman að því að búa til sterka heildarmynd fyrir lesendur, hlustendur og áhorfendur. Um leið og hópur fréttamanna vinnur fyrir alla miðla verður til svigrúm fyrir aðra til að fara dýpra í málin í einstökum miðlum. Sameiningin þjónar þannig því meginmarkmiði að viðskiptavinir miðla 365 fái betri fréttaþjónustu. Sameiningunni verður hrint í framkvæmd í áföngum á næstu vikum og mánuðum.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira