Framtíðin er ekki alveg í mínum höndum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 25. október 2013 07:00 Brynjar mun þurfa að segja Garðari Jóhannssyni til ef hann fer í Stjörnuna. Mynd/Valli „
Ég vil sem minnst um málið segja eins og staðan er núna,“ sagði Brynjar Björn Gunnarsson aðspurður um hvort hann væri á leið í Stjörnuna sem spilandi aðstoðarþjálfari. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa Stjörnumenn áhuga á Brynjari Birni. Rúnar Páll Sigmundsson, fyrrum aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, var ráðinn sem aðalþjálfari fyrr í vikunni og hann leitar nú að aðstoðarmanni. „Ég er í fríi á Flórída og kem heim eftir helgina. Þá mun ég taka stöðuna almennilega og fara yfir mín mál. Ég er að njóta þess að vera í fríi með fjölskyldunni en það er ansi oft þannig að þegar ég er í fríi þá fer eitthvað í gang. Ég man varla eftir því að hafa verið í fríi án þess að eitthvað væri í gangi.“ Brynjar Björn er með UEFA B- þjálfararéttindi og í næsta mánuði stefnir hann á að fá A-gráðuna. Hann fer ekkert leynt með að hugur hans stefnir í þjálfun. „Ég stefni á að þjálfa í framtíðinni. Ég verð væntanlega kominn með full réttindi til að þjálfa í næsta mánuði,“ sagði Brynjar en hann átti lipra spretti með KR í sumar og hefur hug á því að sprikla meira. „Eins og staðan er núna er stefnan að spila fótbolta áfram. Framhaldið hjá mér kemur í ljós þegar ég kem heim. Ég er samningsbundinn KR þannig að ég mun eðlilega ræða við þá þegar ég kem heim. Framtíðin er því ekki alveg í mínum höndum.“ Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur Brynjar lýst yfir áhuga á að þjálfa hjá KR en þar eru ekki neinar stöður í boði í dag.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira