Konan og barnið halda Kjartani Henry gangandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2013 20:30
Kjartan Henry Finnbogason, framherji KR-inga og besti leikmaður Pepsi-deildarinnar árið 2011, fór í aðgerð á hné í gær. Hann hefur lítið getað beitt sér á knattspyrnuvellinum í tæp tvö ár. Guðjón Guðmundsson, íþróttafréttamaður á Stöð 2, hitti KR-inginn Kjartan Henry Finnbogason í dag og tók við hann viðtal fyrir kvöldfréttir Stöðvar tvö. Kjartan hefur verið að glíma við erfið meiðsli á hné sem hafa gert það að verkum að hann hefur verið hálfur maður frá því í júní 2012. Aðgerðin sem hann fór í í gær var ekki umflúin. „Þetta byrjaði sakleysislega sem smá brjóskskemmdir sem ég held að allir knattspyrnumenn í dag séu með," sagði Kjartan Henry í viðtali við Gaupa. „Nú er búið að styrkja það sem þurfti að styrkja. Mér leið samt ágætlega í sumar. Ég var alltaf með vökva í hnénu en lék tappa af mér reglulega og fékk líka nokkrar sterasprautur. Við háttuðum síðan bæði æfinga- og leikjaálagi eftir því sem ég gat. Ég fékk að spila einhverja leiki sem var mjög gaman," segir Kjartan Henry. Kjartan Henry Finnbogason skoraði 3 mörk í 13 leikjum með KR í Pepsi-deildinni í ár en hann var aðeins í byrjunarliðinu í einum leik og kom því tólf sinnum inná sem varamaður. Kjartan náði því bara að spila í samtals 311 mínútur í Pepsi-deildinni í sumar. „Auðvitað komu dagar þar sem maður spurði: Af hverju ég? Það hjálpar manni ekki neitt. Ég er með svakalega góða fjölskyldu, konu og barn í kringum mig og þau halda mér gangandi," sagði Kjartan Henry. Hann sér fram á betri tíma og ætlar sér að snúa aftur á völlinn sem fyrst. Kjartan Henry hefur alls skorað 33 mörk í efstu deild fyrir KR og er níundi markahæsti leikmaður félagsins frá upphafi. Hann skoraði 12 mörk í Pepsi-deildinni 2011 þegar hann spilaði sitt síðasta tímabil fullfrískur. Það er hægt að sjá allt innslagið með því að smella hér fyrir ofan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Horfðu á golfmót í körfubíl Golf Fleiri fréttir Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Sjá meira