Skrifaði á ennið á Julius von Bismarck Valur Grettisson skrifar 20. júní 2013 21:24 "og ég hefndi bara fyrir þetta,“ segir Guðný Guðmundsdóttir sem tók sig til og skrifaði nafn listamannsins á ennið á honum, og þar með snéri hún með skondnum hætti út úr listrænum sjónarmiðum sýningarinnar sem er svo umdeild hér á landi. Mynd / Guðný Guðmundsdóttir „
Við fórum á opnun þar sem hann var,“ útskýrir tónlistarkonan Guðný Guðmundsdóttir sem er búsett í Berlín en það má segja að hún hafi hefnt fyrir meint spellvirki á íslenskri náttúru þegar hún skrifaði fornafn listamannsins Julius von Bismarck á ennið á honum. Hún segir að málið hafi augljóslega haft mikil áhrif á hann. Það var í byrjun júní sem tilkynnt var um furðuleg náttúruspjöll í Mývatnssveit. Þannig hafði einhver ritað með risastórum stöfum CRATER utan í hólinn niðri í skál Hverfjalls. Einnig var búið að skrifa CAVE á veggi Grjótagjár. Málið þótti hið undarlegasta og var kært til lögreglunnar á Húsavík sem hóf rannsókn. Um viku síðar birtist viðtal við Hlyn Hallsson myndlistarmann sem greindi frá því að hann hefði verið á sýningarrölti í Berlín þegar hann rakst á listaverk eftir Julius, en þar komu náttúrufyrirbrigðin við Mývatn við sögu, eftir að búið var að mála á þau orð með svipuðum hætti og höfðu verið kærð til lögreglu. Eftir að málið komst í hámæli í fjölmiðlum sendi Julius stutta tilkynningu til fjölmiðla þar sem hann sagðist saklaus af spjöllunum. Orðrétt skrifaði hann: „Það var ekki ég sem letraði þessi orð á Íslandi." Guðný var með hópi vinkvenna sinna þegar þær hittu listamanninn í gærkvöldi. Hún segist hafa rætt við hann í um klukkustund, og þá hafi þetta mál borið hæst á góma. Guðný segir að Julius hafi sagt þeim að hann hefði ekki hitt Íslending síðan atvikið kom upp á, „og það var augljóst að málið hafði mikil áhrif á hann,“ bætir hún við. Guðný segist ekki geta túlkað tilfinningar hans eða hugsun hvað þetta mál varðar. Hún segist aftur á móti hafa rætt ítarlega við Julius um verkið og merkingu þeirra. Meðal þess sem stóð í sýningarskrá fyrir sýningu Juliusar var að almenningur skilgreindi mjög flókin og fjölbreytt náttúrufyrirbrigði með einföldum orðum, eins og skógur (Forrest), eða gígur (Crater). Með verkinu er meðal annars varpað fram spurningunni hvort manneskjan sé raunverulega að horfa á gíg eða fyrirbæri sem storkar skilgreiningunni. Aðspurð hvernig það atvikaðist að Guðný tók sig til og ritaði nafn listamannsins á ennið á honum svarar hún: „Hugmyndin kom upp á Facebook, þá í gríni. Við ætluðum við að fara fyrir framan galleríið og spreyja orðið gallerí á stéttina,“ útskýrir Guðný og bætir við að Julius hafi einmitt sagt við þær að hann hafi hugsað það sama.Hér má sjá myndirnar og listamanninn sjálfan.Eftir að þau höfðu talað saman á listasýningunni fóru þau öll saman á bar í Berlín. Það var þar sem Guðný fékk hugmyndina, „og ég hefndi bara fyrir þetta,“ segir Guðný sem tók sig til og skrifaði nafn listamannsins á ennið á honum, og þar með snéri hún með skondnum hætti út úr listrænum sjónarmiðum sýningarinnar sem er svo umdeild hér á landi. Guðný segir að hún hafi skrifað nafnið á ennið á honum í mestu vinsemd, „og ætli hann hafi ekki litið á þetta sem smá friðþægingu,“ bætir hún sposk við. Julius er þó ekki búin að slíta öll tengsl við Íslendinga, sem eru honum þó sárreiðir fyrir náttúruspjöllin sem fylgismenn hans eiga að hafa drýgt. Hann ætlar að mæta á tónleika með strengjasveitin skark sem Guðný spilar með, en tónleikarnir verða haldnir í Stúdíói Ólafs Elíassonar myndlistarmanns sem er að auki kennari Juliusar. Ástæðan fyrir tónleikunum er koma Ólafs Ragnars Grímssonar til landsins. Þess má geta að lögreglan rannsakar enn málið, sem er komið inn á borð alþjóðdeildar ríkislögreglustjóra, en náttúruspjöll geta varðað allt að tveggja ára fangelsi hér á landi.
Tengdar fréttir Bismarck neitar sök: Segist ekki hafa komið til Íslands lengi Listamaðurinn Júlíus von Bismarck, sem nefndur hefur verið sem náttúrníðingur á Íslandi, neitar sök. Vísir náði tali af honum nú fyrir stundu og þá sagðist hann ekki hafa komið til Íslands í mörg ár. 6. júní 2013 11:49 Telur sig hafa fundið náttúruníðinginn Hlynur Hallsson, myndlistarmaður á Akureyri, var staddur á listasýningu í Berlín þegar hann sá verk þar sem náttúrufyrirbrigðin við Mývatn komu við sögu. 5. júní 2013 20:30 Mest lesið Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Innlent Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Innlent Kona réðst á pizzasendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Fleiri fréttir Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Sjá meira
Bismarck neitar sök: Segist ekki hafa komið til Íslands lengi Listamaðurinn Júlíus von Bismarck, sem nefndur hefur verið sem náttúrníðingur á Íslandi, neitar sök. Vísir náði tali af honum nú fyrir stundu og þá sagðist hann ekki hafa komið til Íslands í mörg ár. 6. júní 2013 11:49
Telur sig hafa fundið náttúruníðinginn Hlynur Hallsson, myndlistarmaður á Akureyri, var staddur á listasýningu í Berlín þegar hann sá verk þar sem náttúrufyrirbrigðin við Mývatn komu við sögu. 5. júní 2013 20:30