Bíða rannsókna í máli níðingsins í Vesturbæ Stígur Helgason skrifar 20. júní 2013 07:30 Lögregla vonast til þess að geta lokið rannsókn á málinu í næstu viku. mynd úr safni
Rúmlega þrítugur maður, sem talinn er hafa numið tíu ára stelpu á brott í Vesturbæ um miðjan maí og beitt hana kynferðisofbeldi, hefur verið látinn sæta geðrannsókn. Lögregla bíður enn niðurstöðu geðrannsóknarinnar, og auk þess niðurstöðu DNA-rannsóknar sem unnin var í Svíþjóð, að sögn Björgvins Björgvinssonar, yfirmanns kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. „En ég á von á að málið verði klárað í næstu viku,“ segir hann. Maðurinn er talinn hafa ekið með stúlkuna út að borgarmörkum og brotið gróflega gegn henni kynferðislega. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur hann verið yfirheyrður í þrígang og heldur enn fast við þann framburð að hann muni ekkert eftir atburðinum. Hann hafi verið afar illa sofinn og undir áhrifum vímugjafa. Sönnunargögnin gegn manninum eru þó ótvíræð og hann mun því ekki draga í efa að hann hafi gerst brotlegur við stúlkuna þótt hann muni ekki eftir því, samkvæmt heimildum blaðsins. Maðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna undanfarið. Það rennur út 28. júní. Björgvin segir ekki ljóst hvort farið verður fram á framlengingu á því.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Fleiri fréttir Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Sjá meira