Slíkur ólíkindablær á frásögn konu um fjárdrátt að dómur var ómerktur 24. apríl 2013 17:52
Hæstiréttur Íslands ómerkti sýknudóm yfir 65 ára gamalli konu sem starfaði í eignastýringu einkabankaþjónustu Kaupþings og var ákærð fyrir að hafa dregið sér fé frá árinu 2004 til 2008. Konan er grunuð um að hafa dregið að sér rúmlega 50 milljónir króna. Það var slitastjórn bankans sem kærði málið árið 2009 eftir bankahrunið. Konan var ákærð fyrir að hafaí starfi sínu hjá bankanum Kaupþingi dregið sér í 18 tilgreind skipti rúmar 50 milljónir krónur með því að millifæra söluandvirði verðbréfa, þar sem skuldar voru tveir, af bankareikningum kaupenda bréfanna inn á eigin bankareikning. Fyrir héraðsdómi játaði konan að hafa ráðstafað söluandvirðinu með þeim hætti sem í ákæru greindi inn á bankareikning hjá öðrum aðilanum og nýtt féð í eigin þágu. Hún hélt því á hinn bóginn fram að um að hafi verið að ræða endurgreiðslu á lánum sem hún hafi veitt hinum aðilanum með kaupum á tveimur víxlum. Taldi héraðsdómur að staðhæfing konunnar styddist að nokkru við framburð vitna sem voru fyrirsvarsmenn fyrirtækisins sem lagt var inn á. Í dómi Hæstaréttar kemur hinsvegar fram að frásögn konunnar um lánveitingar til fyrirtækisins væru ekki studdar neinum gögnum og á henni væri slíkur ólíkindablær að sennilegt mætti telja að niðurstaða héraðsdóms um sönnunargildi munnlegs framburðar fyrir dómi hafi verið röng svo að einhverju skipti um úrslit máls. Taldi Hæstiréttur því óhjákvæmilegt að ómerkja hinn áfrýjaða dóm og meðferð málsins frá upphafi aðalmeðferðar og vísa því heim í hérað til meðferðar á ný.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Sjá meira