Fólk skráð barnlaust og á rangt heimili 24. apríl 2013 06:00 Þau börn sem ekki hafa lögheimili hjá báðum foreldrum sínum eru einungis skráð með eitt foreldri í Þjóðskrá. Ekki er hægt að skrá blóðtengsl í skránni sökum annmarka á kerfinu. Nordicphotos/Getty
Sú krafa að stjórnvöld endurskoði lög um lögheimilisskráningu barna sem búa til skiptis hjá báðum foreldrum hefur verið hávær undanfarið. Málið hefur ratað inn á þing, en stofnaður var starfshópur til að skoða möguleikana og hvað það hefði í för með sér að skrá barn á tvö lögheimili.Ekki hægt að skrá tvö heimili Þjóðskrá hefur ekki möguleika á að skrá barn á tvö heimili af því að kerfið býður ekki upp á það. Sama vandamál skapast þegar annar makinn þarf að flytjast búferlum vegna vinnu sinnar, því samkvæmt lögum þurfa hjón að eiga sama lögheimili. Fólkið slítur því samvistum á pappírnum, einfaldlega vegna þess að annar möguleiki er ekki í stöðunni. Einn megintilgangur Þjóðskrár er að vita hvar fólk býr. Með lögum sem þessum má þó segja að verið sé beinlínis að hvetja fólk til þess að fara á svig við lögin, hvort sem það er að skrá sig úr hjónabandi eða að þykjast búa á öðrum stað en það gerir.Engin blóðtengsl við foreldra Blóðtengsl barna við foreldra sína er heldur ekki hægt að skrá með neinum hætti hjá Þjóðskrá. Þegar hjón skilja eða forsjá barns er skipt verður því að rjúfa tengsl annars foreldrisins við barnið í skráningunni, þar sem einungis er hægt að skrá eitt lögheimili. Forsvarsmenn Þjóðskrár segja þetta afar slæmt því engin leið er til að ná í upplýsingar um líffræðilega foreldra barns án þess að skoða fæðingarskrár í frumritum. Þetta ræðst af því að Þjóðskrá styðst við þrjátíu ára gamalt tölvukerfi. Sigrún J. Guðmundsdóttir, forstöðumaður Þjóðskrár, sagði í samtali við Fréttablaðið í síðasta mánuði að henni liði eins og hún gengi inn í fornöld þegar hún kæmi til vinnu. Lítið hefur breyst í lagaumhverfi Þjóðskrár síðan 1952 þegar lög um hana voru sett. Það endurspeglast meðal annars í vandanum sem blasir við öllum þeim lykilstofnunum samfélagsins sem reiða sig á upplýsingar þaðan.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira