Ullargraffaði heila brú í Kaupmannahöfn Marín Manda skrifar 9. ágúst 2013 12:45 Tinna Þórudóttir Þorvaldsdóttir ásamt börnum sínum.
Tinna Þórudóttir Þorvaldsdóttir ullargraffar borgina og gefur út nýja heklbók á næstunni. "Ég lærði þetta að mestu leyti af Þóru langömmu minni og ömmu Maríu þegar ég var lítil. Í grunnskóla lærði ég einnig sitthvað en löngu áður en hinn almenni áhugi á hannyrðum kviknaði hafði ég verið að prjóna ullarsokka á vini mína. Það var þá enginn annar að gera svona en flestir voru bara glaðir yfir að fá ullarsokka,“ segir Tinna Þórudóttir Þorvaldsdóttir spænskufræðingur.Tinna Þórudóttir Þorvaldsdóttir ullargraffaði þetta í tré í borginni.Ný bók væntanleg Á þessu ári ákvað Tinna að taka frí frá mastersnáminu í spænsku og einbeita sér alveg að hekli. Afraksturinn er heklbókin María sem er væntanleg innan skamms og er önnur bók Tinnu. Bókina segist hún hafa skrifað til þess að heiðra menningararf kvenna. „Fólk gerir sér enga grein fyrir vinnunni á bak við þessa ósýnilegu kvennavinnu sem mæður og ömmur unnu af heilum hug og kenndu áfram. Þarna fengu konur listræna útrás við að setja saman liti og búa til munstur. Þess vegna nota ég oft gömul útsaumsverk sem ég finn í Góða hirðinum þegar ég graffa.“ Fyrri bók Tinnu, Þóra heklbók, kom út haustið árið 2011 og var metsölubók en bróðurpartur uppskriftanna var eftir Tinnu sjálfa. Ullargraffið heillar Undanfarin þrjú ár hefur ullargraffið heillað, enda hefur Tinna heklað ullargraff víðs vegar um heiminn, bæði í Havana og Barcelona. Auk þess ullargraffaði hún heila brú við Nordatlantens brygge í Kaupmannahöfn. „Ég hef graffað staura, baujur og tré. Þetta er alls ekkert ólöglegt og mér finnst þetta svo gaman og fallegt. Hins vegar tekur vinnan töluverðan tíma og maður veit heldur aldrei hve lengi þetta fær að standa því fólk hefur verið að klippa dúllur úr graffinu.“ Um þessar mundir hefur Tinna tekið að sér að lífga upp á leiksvæðið á Bollagöturóló í Norðurmýrinni með ullargraffi en íbúarnir í hverfinu fengu styrk fyrir hverfishátíðinni frá Reykjavíkurborg sem þeir notuðu til þess að endurgera rólóinn í hverfinu.
Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Sjá meira