„Hrein sóun á landi og almannafé“ Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. apríl 2013 11:27 Nýtt vegastæði hefur verið gríðarlega umdeilt. Mynd/ Vilhelm. „
Þótt sumir sjái enga fegurð í hrauni þá þarf ekki sérfræðing til að sjá að mislæg gatnamót fyrir 2.500 manns er hrein sóun á landi og almannafé," segir Andri Snæ Magnason í opnu bréfi um fyrirhugaðan Álftanesveg yfir Gálgahraun í Garðabæ. Mikill styr hefur staðið um þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru í hrauninu. Bréfið, sem Andri Snær skrifaði til Gunnars Einarssonar bæjarstjóra í Garðabæ, birtist í Fréttablaðinu og hér á Vísi í morgun. Hraunvinir, sem leggjast gegn vegagerðinni, hafa efnt til mótmæla í hrauninu og halda úti undirskriftasöfnun á netinu og síðu á Facebook þar sem sjónarmið þeirra eru rakin. Segja þau að hraunið sé á náttúruminjaskrá og njóti sérstakrar verndar samkvæmt lögum.Í grein sinni bendir Andri Snær meðal annars á að Álftanesvegur sé hannaður fyrir 20.000 bíla á sólarhring. Byggð í Garðaholti verði ekki í bráð og Álftanes muni ekki vaxa á þeim hraða sem ætlað var. Á höfuðborgarsvæðinu séu tilbúin hverfi með lögnum, veitum og vegum fyrir vöxt næstu tuttugu ára. Urriðaholt sé tómt, Úlfarsárdalur, Helgafellslandið - endalaus svæði til að fylla og búið að kosta tugmilljörðum í lagnir og vegi. Misfellur á gamla veginum megi laga fyrir brot af þeim milljarði sem nýr vegur kosti. Þá bendir Andri Snær á að hraunið sé mikilvægt náttúrufyrirbrigði sem beri að vernda og að aðrar lausnir séu færar en vegur um hraunið.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira