Lífshættulegt fyrir börn að sofa uppi í 22. maí 2013 06:00 Mikilvægt er að setja ungabörn strax aftur í eigið rúm eftir brjóstagjöf að nóttu. Líkur á vöggudauða fimmfaldast ef barnið sefur í rúmi hjá foreldrum sínum. Fréttablaðið/Mynd úr safni
Ungabörn sem sofa uppi í rúmi hjá foreldrum sínum eru fimm sinnum líklegri til að deyja vöggudauða samkvæmt nýrri breskri rannsókn. Sindri Valdimarsson barnalæknir segir löngu vitað að það sé stór áhættuþáttur vegna vöggudauða. Niðurstaða nýrrar breskrar rannsóknar leiðir í ljós að ungabörn sem sofa uppi í hjá foreldrum sínum eru fimm sinnum líklegri til að deyja vöggudauða en börn sem sofa ein í rúmi. Hafa heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi verið hvött til þess að bregðast hratt við og endurskoða fyrri ráðleggingar sínar, og beina þeim tilmælum til foreldra að sofa aldrei með börn undir þriggja mánaða aldri uppi í rúmi hjá sér. Það hefur þegar verið gert í Bandaríkjunum og Hollandi. Sindri Valdimarsson, barnalæknir á Barnaspítala Hringsins, segir niðurstöðurnar ekki vera ný tíðindi. Það hafi löngu verið vitað að svefn ungbarna og foreldra í sama rúmi sé áhættuþáttur fyrir vöggudauða. „Þetta hefur verið þekkt vel og lengi sem einn af þessum stóru áhættuþáttum fyrir vöggudauða. Þessi rannsókn ef til vill staðfestir það enn frekar og sýnir fram á einhvern ákveðinn margföldunarstuðul sem ekki hefur verið sýnt fram á áður eða að það séu sterkari tengsl en áður var talið, en þetta er vel þekkt.“ Hann nefnir að reykingar móður séu einnig stór áhættuþáttur fyrir ungbarnadauða sem og að börn séu látin sofa á maganum. Mikilvægt sé að börnin séu látin strax aftur í eigið rúm eða vöggu eftir að brjóstagjöf lýkur að nóttu til. „Þú veist aldrei hvað þú gerir þegar þú sefur, hvernig þú leggst að barninu eða hvernig barn færir sig, þannig að það er auðvitað aldrei mælt með því að ungabörn sofi í rúmi með foreldrum sínum heldur í sínu eigin rúmi.“ Hann segir áhættuna minnka eftir því sem barnið eldist en engu að síður sé það góður siður að venja barnið við að sofa í eigin rúmi. „Það er líka góður siður upp á framhaldið og einkalífið að venja þau við eigið rúm sem fyrst.“ Núverandi leiðbeiningar í Bretlandi um aðgerðir til varnar vöggudauða kveða á um að aðeins þeir foreldrar sem reykja eða nota áfengi og/eða eiturlyf sofi ekki í sama rúmi og ungabörn þeirra. Aðrir sérfræðingar vara við breytingum á núverandi reglum og segja að bann gæti leitt til aukins vöggudauða þar sem foreldrar væru þá líklegri til að sofna þar sem þeir væru að sinna barni í sófa eða stól sem mun vera enn varasamara en að sofa með barninu í rúmi. Sindri Valdimarsson barnalæknir segir löngu vitað að þetta sé stór áhættuþáttur vegna vöggudauða.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira