Kokkalandsliðið sló þetta líka svona í gegn Ellý Ármanns skrifar 21. október 2013 14:45 Myndir/Rabbi og Ellý
Meðfylgjandi myndir voru teknar á styrktarkvöldverði kokkalandsliðs Íslands sem fram fór á LAVA veitingahúsi Bláa Lónsins á föstudaginn var. Um var að ræða fyrsta skrefið í undirbúningi liðsins fyrir heimsmeistaramótið í matreiðslu sem fram fer í Lúxembúrg á næsta ári. Boðið var upp á metnaðarfullan keppnismatseðil þar sem íslenskt hráefni var í öndvegi. Það er kostnaðarsamt að taka þátt í alþjóðlegum matreiðslukeppnum og því er nauðsynlegt fyrir liðið að eiga stuðningsaðila sem vilja leggja sitt af mörkum til að halda merki íslenskrar matreiðslu á lofti.Á matseðlinum voru fimm vægast sagt ljúffengir réttir: Steinbítskinnar hægeldaðar í kryddjurtaolíu með jarðskokkum, stökku brauði og fáfnisgrasi. Grafinn lax og hörpuskel með skelfisksósu, spergilkáli, byggi, dilli og hrognum. Epla- og seljurótarseyði borið fram með vatnakarsa og heslihnetum. Lambahryggsvöðvi og – tunga með lambasoðsgljáa ásamt kartöflusmælki, villtum sveppum, sýrðum laukum, bakaðri gulrót og sítrónublóðbergi. Skyr frá Erpsstöðum og birki-brioche með hvítsúkkulaði, rabarbara og hnetusmjöri.Örn Árnason leikari stjórnaði veislunni af sinni alkunnu snilld og boðið var upp á söngatriði með þeim Matta Matt og Magna Ásgeirssyni.Facebooksíða kokkalandsliðisins.LAVA - veitingahús Bláa Lónsins.Hér má sjá umfjöllun Ísland í dag um styrktarkvöldverðinn.Kokkalandsliðið: Hákon Már Örvarsson faglegur framkvæmdastjóri, Þráinn Freyr Vigfússon fyrirliði, Viktor Örn Andrésson liðsstjóri, Bjarni Siguróli Jakobsson, Arnar Jón Ragnarsson, Axel Clausen, Þorkell Sigríðarson, Daníel Cochran, Garðar Kári Garðarsson, Fannar Vernharðsson, Ylfa Helgadóttir, Hafsteinn Ólafsson og María Shramko sem er meistari í sykurskreytingum.Kokkalandsliðið hleypti ljósmyndaranum inn í eldhús.Smelltu á efstu mynd í frétt til að fletta albúminu.
Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Menning Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira