Lífið

Sjúklega sætar syndir

Ellý Ármanns skrifar
Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar Eva María Hallgrímsdóttir 32 ára sem sérhæfir sig í kökuskreytingum opnaði kökugalleríið Sætar syndir í Nethyl 2. 

Áhuginn vaknaði eftir að sonurinn fæddist

„Á þessu ári tók ég það skref að opna fyrirtækið Sætar syndir sem sérhæfir sig í kökuskreytingum. Þegar 4 ára sonur minn fæddist þá vaknaði hjá mér mikill áhugi á kökuskreytingum, sérstaklega í tengslum við afmælin hans. Með timanum urðu kökurnar alltaf flóknari og viðameiri ásamt því að hæfileikar mínar á þessu sviði jukust," segir Eva María spurð hvenær áhuginn á kökuskreytingum vaknaði. 

Gaman að gera fallegar kökur

„Ég er viðskiptafræðingur að mennt og hef unnið við fjármál síðan árið 2004 sem er auðvitað ekkert tengt kökuskreytingum en ég fann hvað mér fannst gaman að gera fallegar kökur og ákvað því að breyta algjörlega um stefnu og fara út í eigin rekstur," segir hún.

Eftirspurnin til staðar 

„Ég hafði séð og heyrt að það væri eftirspurn og vöntun á meira persónulegum kökum á markaðinum og því gaman að geta boðið upp á meira úrval. Það hefur því verið nóg að gera hjá Sætum syndum frá opnun mér til mikillar ánægju og sýnir að þessi eftirspurn var til staðar."

„Ég hef gert kökur út frá ýmsum þemum, fallegar barnafígúrur, stílhreinar brúðarkökur, öðruvísi fermingartertur og einnig djarfar gæsa og steggjakökur," segir Eva María.

Á heimasíðunni Sætarsyndir.is er hægt að sjá hluta af þeim kökuskreytingum sem Eva María hefur gert. 

Facebooksíðan hennar Evu Maríu.

Eva María eigandi og eiginmaður hennar Halldór Ólafsson.
Heiða Ólafs söng af sinni alkunnu snilld.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.