Falskar ásakanir skemma fyrir raunverulegum málum Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 23. júní 2013 19:13
Í fréttum Stöðvar tvö í gærkvöldi var viðtal við mann sem ranglega var sakaður af barnsmóður sinni um kynferðislegt ofbeldi gegn dóttur þeirra. Það mál er ekkert einsdæmi. „Því miður þá kemur það alltaf upp af og til að það koma tilkynningar til barnaverndarnefnda þar sem verið er að ásaka foreldra, t.d. feður um að beita kynferðisofbeldi eða því um líku,“ segir Steinunn Bergmann, félagsráðgjafi hjá Barnaverndarstofu. „Það er ekki bara dæmi um að mæður ásaki feður, heldur líka dæmi um að feður ásaki mæðurnar eða ásaki nýja stjúpföðurinn sem er kominn inn á heimilið. Þannig að þetta gengur í báðar áttir.“ Steinunn segir að því miður sé það svo að í erfiðum forsjárdeilumálum beri foreldrar ekki alltaf hag barna sinna nægjanlega fyrir brjósti og að sumar forsjárdeilur séu svo hatrammar að barnaverndin hefur þurft að grípa til þess að vista börn utan heimilis, þar sem að þeim er ekki vært á hvorugu heimilinu. „Þessi mál þar sem að fólk er að koma með falskar ásakanir þau skemma fyrir þessum málum sem eru raunveruleg þar sem að það getur auðvitað verið að barnið sé beitt ofbeldi eða vanrækt hjá hinu foreldrinu og þá er erfitt að hlusta á slíkt ef að barnaverndin er að fá mikið af fölskum málum sem eru ekki á rökum reistar,“ segir Steinunn. En hvaða áhrif getur þetta haft á börn? „Svona deilur reyna alveg afskaplega mikið á börnin og það er svo erfitt fyrir barnið að fá það stöðugt yfir sig að foreldrar séu að ásaka hvort annað, það sé verið að ræða við barnið og það jafnvel yfirheyrt þegar það kemur heim um hvernig var hjá pabba eða hvernig var hjá mömmu. Börnum þykir vænt um báða foreldra sína og vilja að sjálfsögðu vera hjá þeim báðum og það er mjög meiðandi fyrir börnin að þurfa að hlusta á ásakanir á foreldri sitt,“ segir Steinunn.Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður.mynd/stöð 2Skjólstæðingar brotna niður Deilur foreldra geta verið erfiðar og á fólk það oft til að nota vanhugsuð úrræði til að beita sem vopnum í deilum sínum. En hvaða staða er komin upp fyrir þann sem að ósekju er sakaður um kynferðisbrot gegn barni sínu? „Það er mjög algengt að menn lendi í mjög erfiðri stöðu þegar slíkar ásakanir koma fram,“ segir Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður. „Í fyrsta lagi auðvitað mjög erfiðum yfirheyrslum og svo gerist það stundum að menn þurfa að sæta gæsluvarðhaldi út af slíkum málum.“ Sveinn segir að oft taki við hjá þeim sakaða mjög löng bið eftir því að mál er fellt niður og á meðan málið er til meðferðar hefur mjög harkalegum aðferðum verið beitt af hálfu lögreglu. „Ég man nýverið um dæmi þar sem skjólstæðingur minn fékk heimsókn frá víkingasveitinni og hann var handtekinn. Það stóð til að setja hann og annan mann í gæsluvarðhald, en það var nú hætt við. Svo kom á daginn að ásakanirnar voru gjörsamlega staðlausar. Ég held að hans atvinnutæki, tölvan, hafi verið tekin og skoðuð og síminn, og ég held að hann sé ekki búinn að fá þetta afhent nokkrum vikum síðar.“ Aðspurður segir Sveinn að hann hafi séð sína skjólstæðinga algjörlega brotna niður við þetta. Löggjöfin tekur mjög hart á þeim brotum þegar borið er á menn rangar sakargiftir og í 148. grein hegningarlaga kemur fram að það geti varðað undir venjulegum kringumstæðum allt að tíu ára fangelsi. „Ef það er sýnt fram á að hinn brotlegi hafi ætlað að baka viðkomandi velferðamissi er lágmarksrefsing tvö ár og allt að sextán ára fangelsi.“ En er algengt að menn vilji ekkert gera í kjölfar þess að á þá eru bornar rangar sakargiftir? „Það er líka býsna algengt því að þeir átta sig á því líka það er kannski gott að láta málið liggja. Það geti verið erfitt fyrir viðkomandi að sanna þennan ásetning á þann sem bar á hann kæruna.“
Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Erlent Fleiri fréttir Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin Niceair aflýsir jómfrúarfluginu „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Sjá meira