Aðstoðarkonan segist hafa sent fundarboðið 21. júní 2013 17:56
Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, aðstoðarkona Sigurðar Inga Jóhannssonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segist í yfirlýsingu sem hún sendi fjölmiðlum síðdegis hafa boðað til fundarins við forsvarsmenn undirskriftarsöfnunar um óbreytt veiðigjald. Það hafi því ekki verið ráðherra sem boðað til fundarins. Hart var deilt á Sigurð Inga Jóhannsson sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra á Alþingi í dag eftir að afrit af fundarboði til aðstandenda undirskriftarsöfnunar varðandi breytingar á veiðigjaldi var sent á yfirboðara eins þeirra Agnars Kristjáns Þorsteinssonar. Aðstoðarkona Sigurðar Inga hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins:„Upphaflega reyndi ég að ná í forsvarsmenn söfnunarinnar í síma en án árangurs. Þeir höfðu áður komið fram í fjölmiðlum undir nafni og mér var því kunnugt um hverja ég vildi ná í. Í framhaldi af því reyndi ég að finna netföng sem ég gæti haft samband við. Ég sendi á tvö netföng sem ég fann og taldi tilheyra viðkomandi aðila. Í pósti mínum ávarpa ég með bæði upphafs og millinafni og býð til fundar með ráðherra og mæli fyrir tíma.Mér finnst afar leitt, að komið hefur í ljós, að annað netfangið sem ég taldi vera rétt tilheyrði yfirmanni þess aðila sem ég vildi ná sambandi við. Ætlun mín var engin í þá átt að tala við nokkurn annann en hann eða sverta eða reyna að koma á óorði að nokkru leyti. Ráðherra var sjálfur ekki staðnum, en bað mig fyrir verkinu. Ég ber virðingu fyrir fólki sem hefur hugsjón og sýnir þjóðfélagsmálum áhuga. Um hrein mistök af minni hálfu var að ræða, ég átti rösklegan dag í gær, ég vandaði ég ekki nægilega til verka og gerði mistök. Ég bað viðkomandi afsökunar um leið og mér var málið kunnugt, þ.e. á opnum fundi um undirskriftarsöfnunina í dag og óska þess að þetta hafi ekki neikvæðar afleiðingar fyrir hann.Með fyrirfram þökk, Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, aðstoðarmaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra“
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira