Heimsþekktur afhommari kemur úr skápnum Jakob Bjarnar skrifar 21. júní 2013 16:04 Chambers kom til Íslands í upphafi árs 2007 og olli þá talsverðum usla.
Íslandsvinurinn Alan Chambers, sem árum saman hefur farið um heiminn til að afhomma mann og annan, er kominn út úr skápnum. Chambers biður samkynhneigða afsökunar á þeirri vanlíðan og skaða sem hann hefur unnið með starfsemi sinni. Chambers er forstöðumaður safnaðar sem rekur 220 kirkjur sem eru gerðar út frá Flórída; Exodus International. Einn helsti tilgangur safnaðarins hefur verið að lækna fólk af samkynhneigð með hjálp trúarinnar. Þessi söfnuður hefur nú verið leystur upp í kjölfar játninga Chambers. Hann játar að hafa laðast kynferðislega, nú um sjö ára tímabil, að karlmanni. Í bréfi sem Chambers hefur birt kemur fram að hann biðjist afsökunar á þeirri vanlíðan sem hann hefur valdið fjölda samkynhneigðra, sem fyrir hans orð hafa verið að takast á við tilfinningar sem eru þeim eiginlegar. Og því að hafa kallað samkynhneigða sódómíska og eitthvað þaðan af verra. Chambers kom hingað til lands árið 2007 og olli þá talsverðu uppnámi; fór meðal annars í umdeilt Kastljósviðtal, en Helgi Seljan ræddi við manninn. Chambers var hér á vegum Hvítasunnusafnaðarins í Keflavík og fór víða um og flutti erindi. Kristinn Ásgrímsson forstöðumaður safnaðarins var hans hægri hönd og sagði þá, í viðtali við Fréttablaðið, að einstaklega vel hafi til tekist og dæmi væru um að Íslendingar hefðu afhommast með hjálp trúarinnar. Chambers hélt því fram að hann hafi náð tökum á þessari hneigð sinni með hjálp trúarinnar og að árlega bærust Exodus International yfir 400 þúsund símtöl frá fólki í neyð; fólki sem kirkjan hjálpaði á beinu brautina í átt til gagnkynhneigðar. Sjá nánar fjallað um málið hér.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira