Óttast að ESB málið verði drepið og viðræður aldrei kláraðar Þorbjörn Þórðarson skrifar 21. júní 2013 18:30 Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra. Viðræður við ESB voru efnislega stöðvaðar í síðustu viku þótt talað sé um "hlé“ í stjórnarsáttmála.
Viðbótarkostnaður vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið samhliða sveitarstjórnarkosningum yrði óverulegur með hliðsjón af heildarkostnaði við kosningarnar. Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram þingsályktun en óvíst er hvaða stuðnings hún nýtur meðal stjórnarþingmanna. Þingflokkur Samfylkingarinnar eins og hann leggur sig, níu þingmenn, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Tillagan gengur út á að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu sem fram fari samhliða sveitarstjórnarkosningum vorið 2014. Þessi útfærsla er athyglisverð fyrir þær sakir að forsætisráðherra viðraði sjálfur sömu hugmynd á fundi VÍB, eignastýringar Íslandsbanka, rétt fyrir kosningar. Á fundinum var stefna fyrir atvinnulífið á dagskrá en þar var rætt um áframhald aðildarviðræðna við ESB. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson spurði þá fundarstjóra hvernig honum litist á að halda þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða sveitarstjórnarkosningum á næsta ári, en lýsti því ekki beint yfir hvort hann teldi það æskilegt. Hann svaraði í raun spurningu fundarstjóra með annarri spurningu.Lofuðu báðir stjórnarflokkarnir ekki þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna? Báðir stjórnarflokkarnir höfðu slíka atkvæðagreiðslu á stefnuskrá sinni. Í kosningastefnu Sjálfstæðisflokksins segir: „Kjósendur ákveði í þjóðaratkvæðagreiðslu á kjörtímabilinu hvort aðildarviðræðum skuli haldið áfram.“ Flokksforystan ítrekaði síðan að slík atkvæðagreiðsla yrði haldin á fyrri hluta kjörtímabilsins. Í stefnu Framsóknarflokksins segir: „ekki verði haldið lengra í aðildarviðræðum við Evrópusambandið nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.“ Þeir sem vilja ljúka aðildarviðræðunum óttast að stjórnarflokkarnir tveir muni ekki efna þetta og í raun verði málið drepið, en aðildarviðræðurnar voru efnislega stöðvaðar í síðustu viku og starf samninganefnda stöðvað þótt í stjórnarsáttmála sé talað um „hlé.“ Óvíst er hvaða stuðnings þingsályktunartillagan nýtur meðal stjórnarþingmanna, en þeir sem fréttastofa ræddi við í dag vildu ekki tjá sig um hana. Þær upplýsingar fengust frá innanríkisráðuneytinu í dag að kostnaður við að halda þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða sveitarstjórnarkosningum þýddi að útbúa þyrfti tvær kjörskrár og auka kjörseðil. Það má því áætla að prentkostnaður muni tvöfaldast. Eftir því sem fréttastofa kemst næst væri kostnaðaraukningin óveruleg með hliðsjón af heildarkostnaði vegna kosninganna, en hún hlypi samt á tugum milljóna króna.
Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira