Þrjú rán síðastliðinn sólarhring Hugrún Halldórsdóttir skrifar 23. febrúar 2013 18:38
Þrjú ofbeldisrán hafa verið framin í verslunum á höfuðborgarsvæðinu síðasta sólarhringinn þar af tvö í 10-11. Þrír menn voru handteknir nú síðdegis í tengslum við eitt þeirra. Tveir grímuklæddir menn komu á miðnætti inn í verslun 10-11 í Þverbrekku í Kópavogi og höfðu í hótunum við starfsstúlku, tóku hana hálstaki og neyttu til að opna peningakassa. Mennirnir hrifsuðu lítilræði af peningum og komust undan. Starfsstúlkuna sakaði ekki samkvæmt upplýsingum frá talsmanni 10-11 en henni var þó mjög brugðið. Um svipað leyti fór maður, sem huldi andlit sitt með klút, inn í Pétursbúð í Vesturbænum og hótaði þar starfsstúlku með einhverju sem líktist hníf og skipaði henni að opna peningakassann. Þaðan tók hann um fimmtán þúsund krónur og hvarf út í myrkrið. Starfsstúlkan er að sögn eiganda búðarinnar ómeidd. Þá var þriðja ránið framið um hádegisbil í dag og það í annarri 10-11 verslun. Grímuklæddur maður fór inn í 10-11 við Seljaveg í Reykjavík og ógnaði þar starfsmanni með glerbroti. Sá hrifsaði lítilræði af peningum úr peningakassanum og komst undan á hlaupum. Engan sakaði í ráninu en þrír menn voru stuttu síðar handteknir vegna málsins segir í tilkynningu frá lögreglu. Svo virðist sem enginn hafi verið handtekinn vegna ránanna sem framin voru í kringum miðnætti en fréttastofa hefur í dag ítrekað reynt að ná sambandi við lögreglustöðvarnar sem fara með rannsókn málanna án árangurs.
Mest lesið Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Innlent „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Innlent Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Innlent Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Innlent Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Innlent Fleiri fréttir Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Íslandsmet slegið í málþófi Ekið á sjö ára barn í Borgartúni Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Skorið á bönd palestínska og úkraínska fánans Konan er komin í leitirnar Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Alls 246 ökumenn sektaðir og átta sviptir vegna hraðaksturs Eldri borgarar skemmtu sér í múmínkastalanum Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn fái yfir þrjátíu prósent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Skráningargjöld, fylgistap og gettó á Gasa Bæjarráð Voga vill gera ráð fyrir flugvelli í Hvassahrauni Leggur til þjóðaratkvæðagreiðslu um bókun 35 Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Óskar viðbragða ráðherra við löngum afgreiðslutíma Lögregla lýsir eftir heilabilaðri konu á Akureyri „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Vilja taka fjármálaáætlun til umræðu Einu verslun Þingeyringa lokað Aðsóknarmet slegið í lögreglunám Sjá meira
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent