Vonast til framkvæmdir við Gálgahraun verði stöðvaðar Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 19. ágúst 2013 19:25 Framkvæmdir við Gálgahraun hófust á föstudaginn síðasta. mynd/365
Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands vonar að Vegagerðin ákveði að stoppa framkvæmdir um lagningu nýs vegar yfir Gálgahraun frá Garðabæ til Álftaness og bíði eftir niðurstöðu dóms um lögmæti framkvæmdanna. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ hefur sagt að rétt hefði verið staðið að öllu í ferlinu, framkvæmdin hafi staðist umhverfismat og heimild hafi fengist fyrir henni. Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands og Hraunavinir halda því hins vegar fram að framkvæmdin sem hafin er við Gálgahraun um lagningu nýs vegar sé ólögmæt. Framkvæmdaleyfið sem gefið var út árið 2009 til eins árs sé löngu útrunnið og því hafi framkvæmdir óumdeilanlega aldrei hafist á gildistíma leyfisins. Jafnframt sé umhverfismat fyrir framkvæmdinni, sem hafi 10 ára gildistíma að lögum, útrunnið. Umhverfismatið sé nú orðið rúmlega 11 ára gamalt. Vegagerðin hefur haldið því fram að með því að með því að stoppa málið myndi Vegagerðin líklega skapa sér skaðabótaskyldu gagnvart verktakanum sem fer með framkvæmdina. Skúli Bjarnason hæstaréttarlögmaður bendir á að málið sem náttúruverndarsamtökin höfðuðu hafi verið þingfest 18. júní síðastliðinn en Vegagerðin skrifaði ekki undir samninginn við verktakann fyrr en 5. júlí. Skúli segir að því sé afar ólíklegt að Vegagerðin hefði skapað sér skaðabótaskyldu gagnvart verktaka fyrir undirritun samningsins. Í þessu máli sé miklu frekar eins og að Vegagerðin sé að reyna að skapa sér skaðabótaskyldu og pressa á að framkvæmdir hefjist.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira