Málinu líklegast áfrýjað Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 31. ágúst 2013 18:30 Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra. mynd/365
Menntamálaráðherra gerir fastlega ráð fyrir því að úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um úthlutunarreglur Lánasjóðs íslenskra námsmanna verði áfrýjað til Hæstaréttar. Hann segir að á næstu dögum verði unnið að því að leysa úr þeirri stöðu sem upp er komin. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp þann úrskurð í gær að Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN) hafi verið óheimilt að breyta lánareglum sjóðsins á þann veg að krafa væri gerð um að námsmenn ljúki 22 einingum á misseri til að fá úthlutað námsláni úr sjóðnum, í stað 18 eininga áður. Menntamálaráðherra gerir fastlega ráð fyrir því að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar þó hann hafi ekki farið yfir það ennþá í smáatriðum. „Ég get ímyndað mér að það sé nú eitthvert fordæmisgildi þarna sem að gæti verið nauðsynlegt að fá þá á hreint hvort að þessi niðurstaða standi eða ekki. Ég á því svona frekar von á því að það verði gert,“ segir Ilugi. Illugi segir að dómurinn breyti engu um þá stöðu að halli á ríkissjóði er áfram til staðar og að ráðuneytið verði að skera niður. „Þannig að við verðum þá að finna aðra leið til að fást við þetta.“ segir hann. Drög fyrri stjórnar LÍN að úthlutunarreglum fyrir skólaárið 2013-14 voru sendar menntamálaráðuneytinu 29. apríl síðastliðinn og eftir yfirferð voru þær ekki staðfestar af þáverandi menntamálaráðherra, þar sem verulegur vafi lá fyrir um getu LÍN til að fjármagna breyttar úthlutunarreglur. Endurskoðuð tillaga núverandi stjórnar LÍN barst svo ráðuneytinu 25. júní og var staðfest af núverandi menntamálaráðherra 9. júlí. Hann er á því að aðgerðin um úthlutunarreglurnar hafi verið skynsamleg. „En það sem mér sýnist dómarinn vera að segja að aðgerðin hefði þurft að liggja fyrir í það minnsta 1. Júní, en núverandi stjórn sjóðsins var ekki sett fyrr en 13. Júní, ef ég man rétt og núverandi ríkisstjórn komst til valda örfáum dögum fyrir 1. Júní,“ segir Illugi. Illugi segir að unnið verði á næstu dögum við að finna lausn á þeirri stöðu sem nú er komin upp.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira