Lárentsínus fær að verja Steinþór Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. maí 2013 16:42 Lárentsínus Kristjánsson skipaður verjandi Steinþórs Gunnarssonar. Mynd/ GVA.
Hæstiréttur hefur fallist á að Lárentsínus Kristjánsson hæstaréttarlögmaður verði skipaður verjandi Steinþórs Gunnarssonar í Landsbankamálinu. Steinþór er ásamt fimm öðrum ákærður fyrir markaðsmisnotkun. Við þingfestingu málsins fyrir héraði krafðist saksóknari þess að Lárentsínus yrði ekki skipaður verjandi Steinþórs. Ástæðan væri sú að Lárentsínus hefði um tíma starfað í skilanefnd og sem formaður skilanefndar Landsbankans eftir að Fjármálaeftirlitið tók stjórn bankans yfir. Hæstiréttur telur að ekki hafi myndast hagsmunatengsl hjá Lárentsínusi við bankann. Þá bendir Hæstiréttur á að Lárentsínus hafi engin tengsl við sakarefni málsins og sérstakur saksóknari hafi upplýst að ekki sé fyrirhugað að hann verði kvaddur til að gefa skýrslu sem vitni í málinu. Óumdeilt sé að skilanefndin hafi haft milligöngu um gagnaöflun vegna rannsóknar Fjármálaeftirlitsins og síðar Sérstaks saksóknara, sem leiddi til ákæru í málinu. Að mati dómsins sé þó ekkert komið fram um þau samskipti sem bendi til þess að lögmaðurinn muni ekki rækja skyldur sínar af kostgæfni og lögum samkvæmt. Hæstiréttur segir því að ekki verði fallist á það með ákæruvaldinu að vegna stöðu Lárentsínusar í skilanefnd bankans teljist hann svo viðriðinn málið að hætta sé á því að hann geti ekki gætt hagsmuna ákærða sem skyldi. Þá sé það meginregla sakamálaréttarfars að sakborningur eigi rétt á því að njóta aðstoðar verjanda að eigin vali.Uppfært:Fram kom í frétt Vísis að Steinþór Gunnarsson væri ákærður fyrir markaðsmisnotkun og umboðssvik. Hið rétta er að Steinþór er einungis ákærður fyrir markaðsmisnotkun.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira