Heilbrigðiseftirlit segir olíumengunarslys alvarlegt Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 10. maí 2013 19:22 Um sex hundruð lítrar af dísilolíu helltust niður á bílastæðinu við Bláfjallaskálann. Mynd/Orkuveitan
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur sent frá sér tilkynningu vegna olíumengunarslyss sem varð innan vatnsverndarsvæðis höfuðborgarinnar í Bláfjöllum. Aukin vöktun verður með neysluvatni borgarbúa næstu vikur. Í tilkynningunni segir að öll umhverfisslys á svæðinu séu litin alvarlegum augum og geti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir neysluvatn höfuðborgarsvæðisins. Þá eru ummæli um að engin hætta sé á ferðum sögð algjörlega úr lausu lofti gripin og ábyrgðarlaus.Tilkynning Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur í heild sinni:Í ljósi fréttaflutnings undanfarið í fjölmiðlum og að farið er með rangt mál í veigamiklum atriðum er snerta vatnsverndarsvæði höfuðborgarbúa vill Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur koma eftirfarandi á framfæri: Bláfjöll, þar með talið skíðasvæðið og Þríhnúkagígar, eru innan vatnsverndarsvæðis höfuðborgarinnar. Svæðið, sem mengunarslys síðastliðinn miðvikudag átti sér stað á, er einnig innan vatnsverndarsvæðisins, nánar tiltekið á fjarsvæði A. Um er að ræða viðkvæmt svæði með mikilli vernd og takmörkunum á öllum framkvæmdum og fleiru sem valdið getur mengun. Öll meðferð olíu er háð leyfi heilbrigðisnefndar og krafist er fullkominna mengunarvarna. Eins er öll starfsemi starfsleyfisskyld. Bláfjöll eru eitt af aðalákomusvæðum vatnsins sem rennur til vatnstökusvæðanna auk þess sem stórir grunnvatnsstraumar liggja undir svæðinu. Þeir straumar fara meðal annars að aðalvatnstökusvæðum höfuðborgarbúa í Vatnsendakrikum í Heiðmörk og til Kaldárbotna í Hafnarfirði. Það gefur augaleið að öll umhverfisslys á svæðinu eru litin alvarlegum augum og geta haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir neysluvatn höfuðborgarsvæðisins sem er í dag grunnvatn í hæsta gæðaflokki og laust við nokkra meðhöndlun. Ummæli eins og heyrst hafa í tengslum við alvarlegt olíumengunarslys á miðvikudaginn síðastliðinn um að engin hætta sé á ferðum og jafnvel þó að mengunarslysið hefði orðið mun stærra, eru algjörlega úr lausu lofti gripin og ábyrgðarlaus. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vill koma því á framfæri að næstu vikur mun aukin vöktun verða með neysluvatni höfuðborgarbúa. Búið er að fjarlægja mengaðan jarðveg eftir megni undanfarna daga auk þess sem málið er í rannsókn.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira