Óskar eftir nýjum bíl í jólagjöf 18. desember 2013 08:00 Berglind gæddi sér á jólalegum ananas og vann sparibauk í jólagjafaleik. MYND/Úr einkasafni
Jólaundirbúningur Berglindar Pétursdóttir hefur ekki gengið stóráfallalaust fyrir sig. „Bíllinn minn er ónýtur, þannig að við komumst ekki langt að kaupa jólagjafir né jólagardínur. Jólagjafirnar í ár verða eimaðar af kærastanum mínum, heklaðar af mér, eða skapaðar af Kára syni mínum, 3 ára, en hann hefur þegar sýnt mikla listræna hæfileika, þrátt fyrir að vera ungur að árum,“ segir Berglind Pétursdóttir, textahöfundur, dansari og GIF-drottning. Berglind fór á Jólagesti Björgvins um síðustu helgi, en hún hafði hlakkað mikið til þeirra. „Bíllinn gaf upp öndina á bílstæðinu á Jólagestunum, ég held hann hafi verið leiður að fá ekki að koma með inn, hann er þar ennþá,“ segir Berglind. „Ég óska hér með eftir bíl í jólagjöf.“ En Berglind er ekki af baki dottin. „Það er mikil jólastemmning í vinnunni hjá mér. Við erum nýbúin að halda jólapartý með Bahama-þema þar sem ég gæddi mér á jólalegum ananas og vann sparibauk í jólagjafaleik,” segir Berglind og segist þrátt fyrir allt, vera mikið jólabarn. „Ég fór til mömmu og pabba að baka smákökur því þau eiga sprautulakkað eldhús en eldhúsið mitt er í smærri kantinum. Ég skildi samt kökurnar eftir hjá þeim, því að ég er engin hemja þegar kemur að smákökum og þarf að halda mér í formi útaf ferli mínum sem dansari.“ segir Berglind.
Mest lesið Stríðið um baðstrendur Ítalíu Lífið Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Lífið Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Lífið Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Lífið Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Lífið Vissir þú að JYSK selur bleikan útilegustól? Lífið samstarf „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Ríflega níutíu manns mættu í eitt stærsta pálínuboð Íslandssögunnar Matur Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Lífið Fleiri fréttir Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Sjá meira