Lífið

"Það nennir enginn að láta selja sér neitt á Facebook lengur“

Vignir Rafn Valþórsson er leikstjóri Bláskjás
Vignir Rafn Valþórsson er leikstjóri Bláskjás

„Það nennir enginn að láta selja sér neitt á Facebook lengur,“ segir Tyrfingur Tyrfingsson, leikskáld, en hann er höfundur nýs verks, Bláskjás, sem verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu í febrúar.

„Leikstjórinn, leikarar og fleiri sem koma að sýningunni eru allir smá viðundur og ógeðslega skemmtilegt fólk, þannig að okkur fannst liggja beinast við að setja ferlið á uppsetningu verksins á Instagram. Þannig getur fólk fylgst með en við ekki áreitt það um leið,“ segir Tyrfingur.

Fyrsta myndin á Instagram-inu er af kaffibolla, sígarettum og vöðluðum nótum höfundar. „Jájá, ég var þarna í smá þroti til að byrja með, en þetta hafðist og nú erum við bara á fullu að setja upp og æfa,“ segir Tyrfingur.

Verkið Bláskjár fjallar um þrjú systkini í Kópavogi. Þau eru að reyna að jarða embættismanninn og sjarmatröllið föður sinn og ætla svo að takast á við lífið. Kannski fá sér smá Jón Bakan fyrst.


















Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.