Hætti að greiða lán en hirti leigutekjur María Lilja Þrastardóttir skrifar 7. maí 2013 06:00 Ingvar Örn Ingólfsson leigði út húsnæði á Akranesi en var hættur að greiða það vegna greiðsluerfiðleika. „
Sýslumaðurinn mætti bara heim til mín og bauð upp íbúðina. Ég hafði ekki heyrt neitt frá leigusalanum sem hafði þá, án minnar vitundar, hætt að greiða af íbúðinni á sama tíma og ég flutti inn,“ segir Þórunn María Örnólfsdóttir. Í byrjun árs 2012 flutti Þórunn María í leiguhúsnæði á Akranesi. Hún greiddi leiguna samviskusamlega í eitt ár eða allt þar til hún fékk veður af yfirvofandi uppboði. Þá leitaði hún leiða í að losna undan leigusamningi. Leigusali Þórunnar Maríu er Ingvar Örn Ingólfsson en hann birti á sunnudaginn færslu á vefritinu Eyjan.is undir fyrirsögninni „Missti húsið á uppboði en Arionbanki eltir hann með eftirstöðvarnar til Noregs“. Ingvar ber sig, í færslunni, illa gagnvart þeim sem hann skuldar, Arion banka. „Hann gleymdi alveg að minnast á það í pistlinum að hann þáði leigu upp á 105 þúsund krónur í hverjum mánuði,“ segir Þórunn María. Ingvar, sem búsettur er í Noregi, segist hafa flúið land vegna greiðsluerfiðleika. Hann hafi séð þá stöðu vænsta að hætta að borga þar sem ekki gekk að semja við bankann. „Ég vildi bara losna við húsið og þeir vildu ekkert fyrir mig gera og ekki semja svo ég fór þessa leið.“ Í Noregi er Ingvar að koma undir sig fótunum og hefur keypt hús þar í landi: „Ég er skráður fyrir húsnæði já, en ég á ekkert í því enn þá,“ segir Ingvar. Ingvar segir að það hafi ekki verið ætlunin að skaða Þórunni Maríu með neinum hætti. „Ég lét hana vita með smá fyrirvara í gegnum Facebook hvert stefndi. Ef henni finnst á sér brotið þá þykir mér það miður og ég ætla að heyra í henni fljótlega sjálfur og segja henni það,“ segir Ingvar. Spurður hvort ekki sé óeðlilegt að þiggja leigutekjur af húsnæði sem hann var hættur að greiða af segir hann svo ekki vera. „Hver ákveður það annars hvert leigutekjur eiga að renna. Ég hefði mögulega getað staðið betur að málum við Þórunni, ég viðurkenni það alveg en peningana notaði ég meðal annars til að greiða upp annað lán,“ segir Ingvar.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira