Kvikmyndasafnið farið fái Gaflaraleikhúsið Bæjarbíó Garðar Örn Úlfarsson skrifar 7. maí 2013 07:00 Forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands segir ómetanlegu menningarlegu djásni verða umbylt verði rekstur Bæjarbíós í Hafnarfirði falinn leikhúsi. Safnið muni þá hverfa úr bænum með allar sýningarvélar sínar. „
Sýningar kvikmynda á vegum safnbíós eins og Kvikmyndasafnið rekur geta ekki átt samleið með rekstri leikhúss í sama húsnæði,“ segir í bréfi Erlends Sveinssonar, forstöðumanns Kvikmyndasafns Íslands, vegna ákvörðunar bæjarráðs Hafnarfjarðar að fela Gaflaraleikhúsinu rekstur Bæjarbíós. Í bréfi Erlends segir að verði leikhúsi falinn rekstur hússins verði kvikmyndasýningum hætt. „Mun safnið þá eðli málsins samkvæmt í kjölfarið taka niður sýningaraðstöðu sína, sýningarvélar, myndvarpa, sýningartjald, öryggiskerfi og fleira. Jafnframt er eðlilegt að safnið kanni rétt sinn vegna kostnaðar sem það hefur lagt út í,“ skrifar Erlendur. Þrátt fyrir þessa skýru afstöðu Kvikmyndasafns Íslands samþykkti bæjarráðið að fela bæjarstjóra að undirbúa samning við Gaflaraleikhúsið um umsjón og rekstur Bæjarbíós og einnig samninga við Leikfélag Hafnarfjarðar og Kvikmyndasafn Íslands um afnot af húsnæðinu. „Bæjarráð leggur áherslu á að við útfærslu nauðsynlegra endurbóta á húsnæðinu verði eftir fremsta megni tekið tillit til þarfa Kvikmyndasafnsins vegna sýningarhalds þess í húsinu og hugað verði að því að vernda það sem enn telst upprunalegt og hefur sérstakt varðveislugildi,“ var bókað í bæjarráðinu. Erlendur segist í samtali við Fréttablaðið ekki vilja tjá sig um málið að svo stöddu. Í fyrrgreindu bréfi til bæjaryfirvalda segir hann málið mundu verða óheillaspor fyrir kvikmyndamenningu þjóðarinnar og að kvikmyndasýningar leggjast af í Hafnarfirði til frambúðar. Kvikmyndasafnið hafi flutt í Hafnarfjörð vegna Bæjarbíós. „Sá flutningur var ekki óumdeildur og ráðuneyti menningar- og menntamála hefur orðið að verja þá ákvörðun allt til þessa dags vegna viðvarandi kröfu um að starfsemin eigi fremur heima í miðbæ Reykjavíkur en í Hafnarfirði,“ segir í bréfi forstöðumannsins sem bendir á sögulega sérstöðu Bæjarbíós. „Það er hiklaust talið einstakt í sinni röð, ekki aðeins á Íslandi heldur einnig á Norðurlöndum og þótt víðar væri leitað,“ segir Erlendur, sem einnig minnir á að ríkið hafi lagt tugmilljónir króna í að færa bíóið til upprunalegs horfs. „Með þeirri endurgerð og virðingu fyrir sögu hússins hefur því verið bjargað frá þeirri niðurlægingu sem það var komið í eftir margra ára leikhússtarfsemi.“
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira