Flestir strikuðu yfir Bjarna 7. maí 2013 10:40 Bjarni Benediktsson var strikaður út af 738 kjósendum flokksins.
Bjarni Benediktsson var strikaður út, eða færður neðar á lista, af 738 kjósendum flokksins í Suðvesturkjördæmi, eða tæplega 5 prósent kjósenda flokksins. Hann er því sá frambjóðandi sem er oftast strikaður út eða færður neðar á lista samkvæmt tölum Landskjörstjórnar. Á eftir Bjarna kemur samflokksmaður hans, Guðlaugur Þór Þórðarson, frambjóðandi flokksins í Reykjavíkurkjördæmi Suður, en 564 strikuðu nafn hans af kjörseðlinum eða breyttu röð hans á lista. Um sex prósent kjósenda flokksins í kjördæminu strikuðu hann því út. Elín Hirst, einnig frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, var svo strikuð út af 551 kjósanda flokksins. Hún bauð fram í sama kjördæmi og Bjarni, eða Suðvesturkjördæmi. Í Vinstri grænum var Álheiður Ingadóttir, frambjóðandi flokksins í Reykjavíkurkjördæmi Suður oftast strikuð út. 242 kjósendur flokksins strikuðu yfir nafn hennar eða breyttu röð hennar á listanum. Það eru tæplega 6 prósent kjósenda flokksins. Í Framsóknarflokknum var Vigdís Hauksdóttir oftast strikuð út. 229 kjósendur strikuðu hana út eða færðu hana neðar á lista, sem gera um fjögur prósent kjósenda flokksins í kjördæminu. Af Pírötum var Jón Þór Ólafsson, kapteinn Pírata í Reykjavíkurkjördæmi Suðri, oftast strikaður út. Alls strikuðu 85 kjósendur flokksins yfir hann eða breyttu röð hans á lista. Það eru um 4 prósent kjósenda listans. Af Samfylkingarmönnum var oftast strikað yfir Össur Skarphéðinsson í Reykjavíkurkjördæmi Norður. Alls strikuðu 108 yfir hann eða rétt rúm tvö prósent kjósenda flokksins í kjördæminu. Raunar strikuðu fleiri hlutfallslega yfir Björgvin G. Sigurðsson, frambjóðanda flokksins í Suðurkjördæmi, eða rétt tæp 3 prósent. Því strikuðu 78 yfir nafn Björgvins, sem náði ekki endurkjöri á þing. Freyja Haraldsdóttir, frambjóðandi Bjartrar Framtíðar í Suðvesturkjördæmi, var svo strikuð út af 152 kjósendum flokksins, og er því sá frambjóðandi flokksins sem var oftast strikaður út. Rúmlega þrjú prósent strikuðu yfir nafn Freyju eða breyttu röð hennar á lista. Það munar þó aðeins 0,9 prósentustigum á Freyju og Björt Ólafsdóttur, frambjóðanda flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norðri. Alls var strikað 119 sinnum yfir Björt, sem er 3,33 prósent útstrikana, á meðan Freyja var með 3,24 prósent. Hlutfallslega var því oftast strikað yfir Björt. Engar útstrikanir höfðu áhrif á stöðu frambjóðanda á listum í kosningununum sem fram fóru 27. apríl síðastliðinn.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira