Ætla að funda í Reykjavík í dag Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 7. maí 2013 12:04 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson ætla að funda í Reykjavík í dag. Mynd/ Daníel.
Stjórnarmyndunarviðræður formanna Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins hefjast að nú í hádeginu. Viðræðurnar eru sagðar ganga vel og gert er ráð fyrir að skýr mynd komist á þær öðru hvoru megin við næstu helgi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins og Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðismanna hafa undanfarna tvo daga fundað ásamt aðstoðarmönnum sínum í sumarbústað við Þingvallavatn. Í gær funduðu þeir fram á kvöld og að því loknu sagði Bjarni í samtali við Vísi að áherslan hingað til hafi verið á þau ár sem séu framundan og hvaða ráðstafandi sé nauðsynlegt að gera til að örva hagkerfið og loka fjárlagagatinu. Bjarni sagði að enn sé ekki farið að ræða útfærslur einstakra mála, á borð við skuldamál heimilanna en hann segist vongóður um að þeim takist að ná saman í þeim málaflokki sem öðrum. Röðun í ráðherrastóla og skipting málaflokka mun heldur ekki hafa verið rædd enn sem komið er og þá hafa aðrir flokksmenn ekki verið kallaðir að samningaborðinu. Eftir að hafa eytt síðustu tveimur dögum í sveitakyrrðinni við Þingvallavatn ákváðu formennirnir að funda í dag í Alþingishúsinu og er sá fundur að hefjast í þessum töluðum orðum. Hvað varðar tímaramma á viðræðunum segir Bjarni að þeir hafi ekki sett sér ströng markmið í því sambandi en hann segir meta það svo að öðru hvoru megin við næstu helgi ætti að vera hægt að fá skýra mynd á niðurstöðuna.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira