Lokað á ólöglegt niðurhal Norðmanna 11. maí 2013 07:00 Snæbjörn Steingrímsson
Norska Stórþingið samþykkti í vikunni lagafrumvarp sem gæti takmarkað verulega möguleika Norðmanna á ólöglegu niðurhali. Framkvæmdastjóri SMÁÍS, samtaka myndréttarhafa, kallar eftir því að sambærileg lög verði sett hér á landi. „Það skortir úrræði á Íslandi til að bregða fæti fyrir ólöglegt niðurhal. Hér hafa verið reknar síður með íslensku eignarhaldi sem dreifa höfundarvörðu efni án greiðslu í mörg ár án þess að hægt hafi verið að loka á þær,“ segir Snæbjörn Steingrímsson, framkvæmdastjóri SMÁÍS. Þá segir Snæbjörn að íslensk stjórnvöld ættu að líta til nýju laganna í Noregi. „Íslensk stjórnvöld ættu að skoða vel þá vinnu sem hefur farið fram í Noregi. Þessi lög, sem víðtækur stuðningur var við í þinginu, eru afrakstur margra ára vinnu þar sem allir hagsmunaaðilar voru leiddir að borðinu og vandað til verks,“ segir Snæbjörn. Norsku lögin veita þarlendum eftirlitsaðilum heimild til þess að loka fyrir aðgengi að vefsíðum, bæði þeim sem skráðar eru í Noregi og öðrum, sem brjóta með stórfelldum hætti gegn höfundarréttarlögum. Þá verður framvegis hægt að bera kennsl á þá einstaklinga sem grunur leikur á að hafi brotið höfundarréttarlög á netinu með því að skoða IP-tölu viðkomandi. Mikill stuðningur var við lagafrumvarpið í norska Stórþinginu en einungis tveir þingmenn kusu gegn því. Nýju lögin taka gildi þann 1. júlí næstkomandi og er fastlega búist því að gerð verði tilraun til þess að loka fyrir aðgang að skráardeilingarsíðum eins og hinni sænsku The Pirate Bay í kjölfarið en norskir dómstólar munu hafa vald til þess. Rétthafar tónlistar, kvikmynda, bóka og annars efnis sem hægt er að dreifa á stafrænu formi án mikilla vandkvæða hafa lengi haft horn í síðu ólöglegs niðurhals. Telja rétthafar að þeir verði árlega af stórum upphæðum vegna ólöglegs niðurhals. Þannig segir Snæbjörn að ólöglegt niðurhal á Íslandi kosti hinar skapandi greinar hátt í tvo milljarða á ári. „Við létum gera könnun á neyslu Íslendinga á kvikmynda- og tónlistarefni í mars 2011. Sú könnun leiddi í ljós að langstærstur hluti neyslunnar fer fram í gegnum vefsíður þar sem listamenn og rétthafar fá ekkert fyrir vinnu sína. Enn fremur sáum við að tæplega fimmtungur hefði keypt efnið hefði það ekki verið aðgengilegt í gegnum þessar síður,“ segir Snæbjörn.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira