Rakst á hreindýr á illkleyfum fjallstindi Svavar Hávarðsson skrifar 11. maí 2013 07:00 Tarfurinn er veturgamall og var sennilega að sækja í æti. Höfn í Hornafirði í baksýn. Mynd/Sigurður Ragnarsson „
Ég var í heilsubótargöngu á Ketillaugarfjalli þegar ég rakst á hreindýrið þarna á toppi fjallsins. Hingað til hef ég aldrei rekist á neitt kvikt þarna nema fugla,“ segir Sigurður Ragnarsson, nemi frá bænum Akurnesi í Nesjum. Sigurður lagði á fjallið 17. apríl og þegar hann var kominn í um 600 metra hæð tók hann eftir dýrinu þar sem það stóð á eystri hluta tindsins, en hann er klofinn frá þeim vestari með klettaskorum. „Töluvert klettaklöngur er að komast þarna upp og ljóst að dýrið hefur þurft að hafa fyrir þessu. Þegar dýrið varð vart við mig fór það í skjól sunnan í tindinum. Mér datt fyrst í hug að dýrið væri í sjálfheldu,“ segir Sigurður sem gat ekki fylgst með því hver næstu skref dýrsins voru. „Það var náttúrulega frekar skrítið að rekast á eitt dýr þarna uppi. Á þessum árstíma halda þau sig flest á eða við tún bænda,“ segir Sigurður, sem ráðfærði sig við Skarphéðin Þórisson, sérfræðing hjá Náttúrustofu Austurlands (NA). Í svari hans kemur fram að hreindýrið var veturgamall tarfur; líklega að sækja í æti. Staðurinn bendi til að dýrið var vel á sig komið, en NA hafa áður borist fregnir af hreindýrum uppi á fjallstindum, og það jafnvel mörg saman. Eins hafi merki frá „senditækjakusunni Grímu“ sýnt að hún dvaldi í júníbyrjun 2009 í þúsund til tólf hundruð metra hæð í Þjófadölum á bak við Snæfell, sem rís í 1.833 metra hæð 20 kílómetra norðaustan Brúarjökuls í norðanverðum Vatnajökli.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira