Segir Íslendinginn hafa ætlað að stinga annan mann - útvarpsmaðurinn gekk á milli 28. maí 2013 11:45 Tjaldið sem morðið átti sér stað í. Norskir fjölmiðlar hafa fjallað mikið um málið. Skjáskot/vg.no
Guðni Ölversson, kennari í Noregi, sagði í viðtali við félagana í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær að Íslendingurinn sem er í haldi fyrir morð þar í landi, hafi ætlað að stinga annan mann þegar útvarpsmaðurinn gekk á milli með hörmulegum afleiðingum. „Það er ekki búið að upplýsa eitt eða neitt,“ sagði Guðni í samtal við Reykjavík síðdegis en hann er búsettur í Noregi og hefur fylgst af mikilli athygli með morðinu sem Íslendingurinn var handtekinn fyrir síðustu helgi. Guðni segir að hópur manna, um 15 til 20 manns, hafi verið í sumarhúsi í þorpinu Valle. Eftir að flestir gengu til náða sátu þrír eftir. Íslendingurinn virðist hafa verið afar æstur en honum leiddist þriðji maðurinn og krafðist þess að hann færi, sem hann tók ekki í mál. Íslendingurinn tók þá í hann og lagði í jörðina en var stöðvaður af þriðja manninum samkvæmt Guðna. Mennirnir sættust og sátu einhverja stund. Fór þá Íslendingurinn að tala um félagi sinn hefði lifað hrikalegt slys af og væri svo heppinn að hann hlyti að vera með níu líf. „Þá datt Íslendingnum í hug að þetta gæti verið satt, og ætlaði að nota hníf sinn til þess að sanna það,“ sagði Guðni. Þá á útvarpsmaðurinn að hafa reynt að stöðva Íslendinginn með hörmulegum afleiðingum, en Íslendingurinn á að hafa stungið hann fjórum sinnum og lést norðmaðurinn á staðnum. „Það er ljóst að menn voru kolruglaðir,“ sagði Guðni um kvöldið örlagaríka en ljóst þykir að menn hafi setið lengi að sumbli. Guðni segir að eftir því sem hann komist næst sé Íslendingurinn, sem er 38 ára gamall, dagfarsprúður maður og líði afar illa í fangelsinu og hafi fengið aðstoð vegna þessa. Maðurinn er giftur og á eitt barn en hann hefur verið á örorkubótum undanfarin ár að sögn Guðna. Eitt vitni er að morðinu, en það er norski milljarðamæringurinn Knut-Axel Ugland. Vísir greindi meðal annars frá því í gær að sá leigði Landhelgisgæslunni björgunarþyrlurnar TF-SIF og TF-GNÁ allt til ársins 2008. Hægt er að hlusta á lýsingu Guðna á málinu hér fyrir ofan.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira