Vill ekki leggja þetta aftur á áhorfendur Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. ágúst 2013 06:00 Elfar Árni tók því rólega heima hjá sér í gær. fréttablaðið/gva „
Ég man að fyrstu mínúturnar í leiknum voru opnar. Svo man ég að Gulli tók útspark. Eftir það var ég bara farinn og man ekkert næstu klukkutímana. Næst man ég að hafa vaknað upp á bráðadeild með gott fólk í kringum mig. Ég fékk slæman heilahristing og við það kom þessi krampi. Það er það sem gerðist,“ sagði Blikinn Elfar Árni Aðalsteinsson, en hann var fluttur af velli með sjúkrabíl á leik Breiðabliks og KR á sunnudag. Höfuð Elfars og KR-ingsins Grétars Sigfinns Sigurðarsonar skullu saman og Elfar lá eftir rotaður. Í kjölfarið fóru um hann óhugnanlegir kippir og var áhorfendum brugðið. Ekki síst þegar öskrað var á hjartastuðtæki og byrjað var að beita hjartahnoði á Elfar á vellinum.Líklega ekki hjartastopp „Ég held ég hafi ekki lent í neinu hjartastoppi. Ég veit ekki hvort það kom fát á fólkið eða hvort menn fundu ekki púls. Læknirinn var ekki á staðnum en hann reiknaði ekki með því að ég hefði lent í hjartastoppi. Það er mögulegt að ég hafi verið með óreglulegan hjartslátt.“ Elfar hefur ekki séð atvikið en hefur hann áhuga á því? „Það væri fróðlegt að sjá þetta en ég hef ekkert pælt mikið í því enn þá.“ Einhverjir þóttust taka eftir því að Elfar hefði sett upp þumalinn er hann var borinn inn í sjúkrabíl. Hann man ekkert eftir því. Svo virðist vera sem rétt hafi verið brugðist við á vellinum er hann missti meðvitund og fyrir það er Húsvíkingurinn þakklátur. „Það var frábært fólk þarna. Mér skilst að bæði mínir menn og KR-ingar hafi veitt aðstoð og það er frábært að heyra. Ég veit ekki hvort ég var í lífshættu en stundum eru höfuðhöggin þannig að menn verða slæmir. Ég held persónulega að ég hafi ekki verið neitt rosalega tæpur.“ Elfar þarf að taka því rólega næstu vikur og svo getur farið að tímabilið sé búið hjá honum. „Ég vil vera skynsamur og ekki leggja þetta aftur á marga áhorfendur. Ég verð að slaka á núna og sjá svo til hvernig ég braggast." Enginn læknir á varamannabekknumÞað vakti athygli margra að enginn læknir skyldi vera á bekknum hjá félögunum er Elfar Árni slasaðist. Það er ekkert óeðlilegt við það segir formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks. „Samkvæmt reglugerð þá þarf sjúkramenntaður einstaklingur að vera á bekknum. Læknir, hjúkrunarfræðingur eða sjúkraþjálfari. Ég veit ekki til annars en að öll lið í deildinni séu með sjúkraþjálfara á bekknum nema í Evrópuleikjum. Þá er skylda að vera með lækni,“ segir Borghildur Sigurðardóttir, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks. „Ég hef heyrt í mönnum hjá KSÍ og oft þarf að fara í gegnum ferlið og endurmeta. Við munum örugglega gera það í sameiningu núna. Það á að nota svona atvik til góðs ef hægt er að bæta eitthvað í umgjörðinni. Við eigum eftir að skoða þetta hjá okkur. Nú eru allir að jafna sig og við þurfum að hlúa að þeim sem eru í kringum okkur áður en við skoðum næstu skref.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Fleiri fréttir Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Sjá meira