Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: FH - Víkingur 2-2 Stefán Hirst Friðriksson á Kaplakrikavelli skrifar 1. september 2013 00:01 mynd/daníel
FH-ingar og Víkingur Ólafsvík gerðu 2-2 jafntefli í átjándu umferð Pepsi-deildarinnar. Leikurinn var virkilega dramatískur en heimamenn náðu tveggja marka forystu áður en markverði FH-inga var vikið af velli og vítaspyrna dæmd. Gestirnir úr Ólafsvík gengu á lagið og jöfnuðu 2-2 og þar við sat. Leikurinn fór rólega af stað í Krikanum en það voru heimamenn í FH sem voru þó sterkari. Þeir náðu forystunni á 27. mínútu þegar Björn Daníel Sverrisson skoraði með skalla eftir hornspyrnu Sam Tillen. Heimamenn héldu áfram að stýra leiknum en gestirnir voru óheppnir að jafna ekki metin undir lok fyrri hálfleiksins þegar Guðmundur Steinn Hafsteinsson skallaði boltann í þverslánna úr dauðafæri. FH-ingar bættu við öðru marki í upphafi síðari hálfleiksins en þar var að verki markavélin Albert Brynjar Ingason með skalla úr hornspyrnu. Ólafsvíkingar fengu heldur betur líflínu á 60. mínútu en þá slapp Guðmundur Steinn Hafsteinsson inn fyrir vörn heimamanna, var felldur af Róberti Erni í marki FH og vítaspyrna dæmd. Dómari leiksins ákvað einnig að gefa Róberti rautt spjald. Antonio Jose Mossi skoraði svo úr vítaspyrnunni. Ólafsvíkingar pressuðu heimamenn nokkuð stíft í kjölfar rauða spjaldsins og tókst þeim að jafna metin á 79. mínútu þegar Insa Bohigues Francisco skoraði með skalla eftir hornspyrnu liðsins. Við tóku bráðfjörugar lokamínútur en bæði lið fengu séns á því að skora sigurmarkið en tókst ekki og jafnteflið því staðreynd. Framundan er mikil fallbarátta hjá Víkingum en FH-ingar virðast vera búnir að missa af lestinni í titilbaráttunni við KR.Heimir: Fíflalæti kostuðu okkur leikinn „Þetta eru auðvitað gríðarleg vonbrigði að ná ekki þremur stigum hérna í dag. Við getum á endanum þakkað fyrir að hafa náð þessu stigi. Við byrjuðum leikinn ekki alveg nógu vel en unnum okkur vel inn í leikinn. Við komumst yfir verðskuldað og bætum svo við öðru marki í seinni hálfleiknum," sagði Heimir. „Í framhaldi á því eiga sér stað einhver fíflalæti og við köstum þessu frá okkur. Við vorum með einhverja kóngastæla inn á vellinum og þeir refsuðu okkur fyrir það. Ef við drögum ekki lærdóm af þessum leik þá er okkur ekki viðbjargandi. „Við vorum í rauninni að kasta endanlega frá okkur möguleikanum að vinna deildina," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH-inga í leikslok.Ejub: Hefðum getað stolið þessu„Ég er rosalega sáttur með mína stráka. Við erum mjög ánægðir með stigið sem við náum í hérna og með smá heppni hefðum við getað stolið sigrinum. Við spiluðum flottan fótbolta og sérstaklega eftir að þeir misstu manninn útaf. Við erum inn í öllum leikjum og höfum við verið að standa okkur vel," sagði Ejub. „Menn eru bara bjartsýnir á framhaldið. Við vorum langlíklegustu kandídatarnir til þess að falla en við erum ennþá á lífi og í möguleika á að halda okkur áfram. Við stefnum að sjálfögðu á að gera það," sagði Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ólafsvíkur í leikslok.Albert Brynjar: Buðum hættunni heim„Við vorum með þennan leik í höndunum þangað til að við misstum manninn útaf. Þetta var virkilega lélegt hjá okkur að slaka svona á eftir að Robbi fór útaf og buðum við hættunni heim. Þeir refsuðu okkur svo fyrir þetta. „Ég er kominn í fínasta stand, er búinn að ná núna tveimur leikjum í röð og það í fyrsta skiptið í sumar. Ég vona að ég sé kominn í gott stand og geti hjálpað liðinu á lokasprettinum," sagði Albert Brynjar Ingason í leikslok.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira