„Mótanefnd KSÍ þarf að lesa betur í veðurspár“ Sigmar Sigfússon á Akranesi skrifar 15. september 2013 16:53 Mynd/Daníel „
Þessi ákvörðun hefði getað legið fyrir í gær og þá átti að fresta leiknum,“ sagði Jónas Gestur Jónasson, formaður Víkings Ólafsvíkur, í samtali við Vísi í dag.Öllum þremur leikjum dagsins í Pepsi-deild karla var frestað vegna veðurs. Viðureign Þórs og Keflavíkur, KR og Fylkis auk viðureignar ÍA og Víkings Ólafsvíkur á Skipaskaga. „Það er ekki hægt að spila í svona veðri. Boltinn yrði meira og minna útaf vellinum, eintóm innköst og lítið um fótbolta svo ég er sáttur með að leiknum hafi verið frestað,“ sagði Jónas Gestur. Hann var þó ekki sáttur við vinnubrögð mótanefndar. „Við vorum í sambandi við mótanefnd KSÍ í gær og það var alltaf vitað að það yrði vitlaust veður hérna seinnipartinn í dag. Allar spár bentu til þess og við eigum mjög góða veðurfræðinga á Íslandi. Ég held að þessi ákvörðun hafi getað legið fyrir í gær og þá átti að fresta leiknum,“ segir Jónas Gestur. „Liðið hefði þá ekki þurft að leggja ferðalagið á sig með tilheyrandi kostnaði. Sömuleiðis hefur síminn ekki stoppað hjá mér í dag þar sem fólk frá Ólafsvík er að spyrja um ástandið. Fólkið var lagt af stað á leikinn gegn öllum spám veðurfræðinga um að halda sér innandyra í dag,“ Ekki liggur ljóst fyrir hvenær leikurinn verður spilaður. Viðureign KR og Fylkis mun þó fara fram á morgun ef veður leyfir. „Þetta er mikill óþarfa kostnaður fyrir okkur og ég held að mótanefndin þurfi að skoða sín vinnubröð betur og lesa betur í veðurspár.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Slapp út úr eldhafinu en fór aftur inn til að bjarga kærustu sinni Fótbolti Amorim rekinn Enski boltinn Líklegastir til að taka við United Enski boltinn „Hef á tilfinningunni að hann hafi talað af sér þarna“ Enski boltinn Sendi United Amorim sneið að skilnaði? Enski boltinn Sjáðu Grindavík klúðra viljandi til að vinna lygilegan sigur Körfubolti Langþráð stund hjá Orra þegar Sociedad tók stig af Atletico Fótbolti Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins Golf „Ég kom hingað til að vera stjóri, ekki til að vera þjálfari“ Enski boltinn Rekinn úr Keflavík en ráðinn á Skaganum Körfubolti Fleiri fréttir Valur fær Dana til að fullmóta teymi sín Ingimar Stöle semur við Val Adda verður hægri hönd Ian Jeffs í sumar „Mér var bara tjáð að þeir ætluðu að leita eitthvað annað“ Enn kvarnast úr liði Blika Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Sjá meira