Myndband frá brunanum í Árósum Gunnar Reynir Valþórsson og Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 19. desember 2013 11:09
Betur fór en á horfðist í morgun þegar þeir Gunnar Þór Nilsen og Friðrik Elís Ásmundsson björguðu rúmenskri fjölskyldu út úr brennandi íbúð í Árósum. Mennirnir gerðu slökkviliði viðvart og hlupu að íbúðinni eftir að þeir sáu að kviknað hafði í gardínu. Einn íbúinn hafði þá komið sér út á einskonar þak yfir verönd, og sagði Gunnar í samtali við Vísi í morgun að eldtungurnar hafi hreinlega sleikt hann. Maðurinn sagði þeim að fleiri væru í íbúðinni og fóru Gunnar og Friðrik þá inn í íbúðina þar sem þeir mættu konu með lítið barn í örmunum. „Við tókum fólkið yfir í íbúðina til okkar og gáfum þeim föt og svona, því slökkviliðið var ekkert komið,“ segir Gunnar en í íbúðinni voru tveir karlmenn, ein kona og litla barnið. Þeir Friðrik og Gunnar fóru síðan aftur yfir að blokkinni og aðstoðuðu íbúa í nærliggjandi íbúðum við að komast út, en eldurinn náði ekki að læsa sig í hinar íbúðirnar, þótt um töluverðar reykskemmdir sé að ræða. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá frá slökkvistarfi.Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Gunnar Þór hefur bjargað mannslífum. Nánar verður fjallað um björgunarafrek hans í fréttum Stöðvar 2 í opinni dagskrá kl. 18.30.
Mest lesið Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Sjá meira