Lágmarka hættuna á umhverfisslysi af völdum Fernöndu Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 2. nóvember 2013 07:00 Reynt var að ráða niðurlögum eldsins í Hafnarfjarðarhöfn þar til ljóst var að það var ómögulegt. Fernanda hefur verið dregin út á Faxaflóa til að lágmarka það umhverfistjón sem gæti orðið ef skipið sekkur. Fréttablaðið/Pjetur Mynd/Pjetur
Varðskipið Þór neyddist til að draga flutningaskipið Fernöndu úr Hafnarfjarðarhöfn í gær eftir að eldur kom upp að nýju. Skipið var dregið á haf út til að auðvelda slökkvistarf og draga úr hættu á umhverfisvá vegna elds og reyks. Þá auðveldaði það slökkvistarf að færa skipið úr höfninni. „Við tókum þessa ákvörðun í samráði við alla hlutaðeigandi aðila og ég tel hana hafa verið rétta á þeim tímapunkti sem hún var tekin. Það er eðli björgunarstarfa að það þarf sífellt að taka ákvarðanir byggðar á takmörkuðum forsendum. Ef ákvarðanir reynast rangar þá breytum við þeim,“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, aðspurður hvort það hafi verið mistök að flytja skipið til hafnar í Hafnarfirði. Hann segir í samtali við Fréttablaðið að ákvörðunin hafi verið tekin þegar talið var að eldurinn væri slokknaður. Jón Viðar segir eldinn í skipinu hafa valdið hans eigin mönnum mestri hættu, en auðvitað hafi íbúar bæjarins orðið fyrir umtalsverðum óþægindum vegna reyks. „Slökkvistarf í skipum er mjög flókið og erfitt verkefni, verkið gekk ágætlega framan af en þegar ljóst varð að eldurinn hélt áfram að breiðast út tók ég ákvörðun um að stofna ekki mínum mönnum í hættu, þar sem þarna var ekki um að ræða neina lífbjörg heldur bara verðmætabjörgun,“ segir Jón Viðar. Hann segir framhaldið óljóst. Ekki liggi fyrir nákvæmlega hversu mikið hafi verið af olíu í skipinu þegar kviknaði í og erfitt að gefa sér hversu mikið gæti verið eftir af olíu til að brenna. „Það er ekki olían sjálf sem brennur heldur gufur sem hún gefur frá sér þegar hún hitnar. Í svona lokuðu rými getur það gengið hægt, en auðvitað er mögulegt að olían hafi lekið víðar en um tankinn, til dæmis út í vélarrýmin. Þetta gæti mögulega tekið einhverja sólarhringa og það eru margir óvissuþættir í þessu sem þarf að fylgjast náið með og bregðast við,“ segir Jón Viðar. Um er að ræða gasolíu, sem er fremur létt olía og ekki eins hættuleg og svartolía ef hún fer í sjóinn þar sem einfaldara er að ráða við hana. Hrafnhildur Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir í samtali við Fréttablaðið að við næstu skref sé aðallega horft til þess að lágmarka hættu á að skipið sökkvi með hliðsjón af umhverfisvá en fyrst og síðast að tryggja öryggi allra þeirra aðila sem koma að aðgerðinni. Helstu áhyggjur Landhelgisgæslunnar eru af því að skipið sökkvi með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. „Það er stefnt á svæði sem eru fjarri hrygningarsvæðum og veiðislóðum og þar sem vindáttin er hagstæð. Það er margt að hugsa um eins og hugsanlegt rek skipsins ef við neyðumst til að hætta drætti af öryggisástæðum, til dæmis ef skipið sekkur,“ segir Hrafnhildur. Hrafnhildur segir Þór útbúinn mengunarvarnabúnaði ef svo skyldi fara að olía færi í sjóinn, þar sem settar væru upp girðingar í kringum olíuna og henni svo dælt upp í varðskipið. Helgi Jensson, ráðgjafi hjá Umhverfisstofnun, segir stofnunina aðallega horfa til þess hvar sé heppilegast, út frá umhverfissjónarmiðum, að staðsetja skipið ef svo illa færi að það sykki með olíu um borð. Hann segir staðsetninguna aðallega miðast við að að skipið sé fjarri hrygningarsvæðum, veiðislóðum og við hentuga hafstrauma. Umhverfisstofnun ásamt Hafrannsóknastofnun hefði lagt til að skipið yrði flutt töluvert langt vestur af miðjum Faxaflóa, í kringum 24. breiddargráðu eða vestar. Helgi tekur fram að aðkoma Umhverfisstofnunar að málinu sé aðeins ráðgefandi, skipið sé alfarið undir stjórn Landhelgisgæslunnar.
Mest lesið Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Innlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Fleiri fréttir Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjá meira
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent